Home Innlent Caged Steel 42 sýnt í Mini Garðinum í kvöld

Caged Steel 42 sýnt í Mini Garðinum í kvöld

0

Caged Steel 42 fer fram í kvöld í Doncaster, Englandi þar sem Reykjavík MMA munu eiga fjóra fulltrúa. Það eru atvinnumennirnir Jhoan Salinas, Haraldur Arnarson og Tiago Oliveira, en auk þeirra mun Vitalii Korshak berjast um áhugamanna léttvigtartitilinn en bardaginn hans gegn Ali Albazi var staðfestur með minna en viku fyrirvara.

Aðalnúmerið á kvöldinu er Jhoan Salinas sem er á leiðinni í sinn annan atvinnumannabardaga en hann átti þvílíkt flotta frammistöðu í atvinnumannafrumraun sinni á Caged Steel 40 í júlí í fyrra þar sem hann kláraði Dec Dean með Guillotine hengingu í fyrstu lotu. Jhoan Salinas verður núna í aðalbardaga kvöldsins gegn Will Gibson, sem hefur verið kallaður “eitt efnilegasta nýja stjörnuefni Bretlands” í auglýsingum frá Caged Steel. Will Gibson mætti Tiago Oliveira frá Reykjavík MMA í síðasta bardaga sem endaði með sigri Gibson eftir ground and pound í annarri lotu. Tiago stóð sig þó mjög vel standandi í fyrstu lotu og sló tönn úr Gibson sem lét það þó ekki mikið á sig fá, skyrpti henni bara úr sér og hélt áfram.

Tiago berst einnig á viðburðinum en hann mætir Afríkumanninum Franklin Esoe sem kemur alla leið frá Kamerún. Esoe byrjaði að berjast á atvinnumannastigi árið 2017 og er á leið í sinn tíunda bardaga gegn Tiago. Esoe kemur alltaf með mjög mikla ákefð inn í bardaga sína en aðeins einn af níu hingað til hafa farið alla leið í dómaraúrskurð. Esoe leitast yfirleitt eftir að ná bardaganum í gólfið og klárar menn oftar en ekki þar, ýmist með uppgjafartaki eða ground and pound höggum. Tiago er kröftugur striker og glíman hefur ávallt verið hans veikasti hlekkur en hann hefur þó sýnt ágætis varnarglímu, eins og t.d. á móti Saqib Khan sem Tiago sigraði á dómaraákvörðun á Caged Steel 40 í júlí í fyrra. Esoe lítur mjög vel út í þeim bardögum sem finna má á YouTube en það er spurning hvort andstæðingar hans séu á jafn háu stigi og Tiago. Við fáum eflaust mjög skemmtilegan bardaga hér og týpíska striker vs. grappler viðureign.

Haraldur Arnarson er að mæta í sinn fjórða atvinnumannabardaga en ferilinn hefur farið brösulega af stað með þremur ósigrum í röð. Haraldur hefur þó sýnt góða takta í öllum þeim bardögum, sérstaklega á móti Kunle Lawal á Caged Steel 39 í mars í fyrra. Það var mjög skemmtilegur bardagi sem fór alla leið en því miður fékk Haraldur sigurinn ekki dæmdan í sitt horn þrátt fyrir að hafa mögulega meitt Lawal meira en honum tókst að meiða Halla en Lawal tók það líklega á virkninni og fleiri lentum höggum. Haraldur hefur ætlað sér að gera ekki sömu mistök aftur þegar hann mætti Liam Dunn á Caged Steel 40 og óð í hann frá fyrstu sekúndu. Haraldur leit mjög vel út þá og setti Dunn í vandræði en mögulega varð hann of ákáfur, gerði mistök og var tekinn niður í gólfið af sterka glímumanninum Dunn sem náði bakinu og kláraði með rear naked choke. Það verður því áhugavert að sjá hvernig Halli kemur inn í þennan bardaga þar sem hann hefur bæði brennt sig á að vera of ákafur og ekki nógu ákafur til skiptis. Andstæðingur Halla er Andy Baker og kemur hann frá sterku liði, Renegade í Birmingham. Andy Baker er að þreyta frumraun sína sem atvinnumaður en hann er 2-0 sem áhugamaður, en hefur þó ekki barist síðan 2018 ef marka má Tapology síðuna hans. Andy Baker er kröftugur striker rétt eins og Halli, sem er auðvitað kickbox yfirþjálfari Reykjavík MMA, og gætum við átt von á mjög skemmtilegum bardaga hér.

Vitalii Korshak og Ali Albazi urðu báðir Glacier Fight Night meistarar fyrir tveimur vikum síðan og snúa fljótt tilbaka til að mæta hvorum öðrum á Caged Steel 42 fyrir léttvigtartitilinn. Báðir menn hafa góða glímugetu og ágætis striking í þokkabót þannig áhugavert verður að sjá hvaða stefnu þessi viðureign mun taka. Vitalii sagði í viðtali við MMA Fréttir að hann sjái miklar holur í leik Albazi og gaf ekki mikið fyrir glímugetuna hans en Vitalii hefur auðvitað ótrúlega mikla freestyle wrestling reynslu, yfir 200 glímuviðureignir, þannig skiljanlegt er að hann hafi mikið sjálfstraust á því sviði.

Það verður eflaust líf og fjör og mikil stemning á Mini Garðinum í kvöld eins og alltaf þegar Reykjavík MMA berjast á Caged Steel. Húsið opnar kl 17:00 og fyrsti bardagi hefst kl 17:30 en enginn munur er á klukkunni á Íslandi og Englandi um þessar mundir. Oftar en ekki troðfylla æfingafélagar og aðdáendur Reykjavík MMA staðinn svo sniðugt er að panta borð í gegnum vefsíðu Mini Garðsins vilji maður tryggja sér gott sæti.

https://www.minigardurinn.is/vidburdir

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version