Sean Strickland barðist um nýliðna helgi gegn Dricus Du Plessis sem er núverandi millivigtarmeistari UFC. Bardaginn fór fram á fótum svo til allan tímann en Du Plessis hafði nokkra yfirburði svo til allan tímann en í fjórðu og fimmtu lotu mátti sjá talsverða áverka á andliti Strickland.
Dana White tjáði sig um frammistöðu Strickland og Du Plessis á fréttamannafundi eftir að bardagakvöldinu var lokið og sagðist hafa orðið undrandi á hegðun Strickland í bardaganum.
Sean er venjulega mjög góður í að loka á bardagamenn, eins og Izzy. Þegar hann barðist við Izzy, leit út fyrir að Izzy næði engum takti og Strickland var í andlitinu á honum allan tímann með pressu. Það gerði Du Plessis í þessum bardaga (gegn Strickland) og ég skal segja ykkur svolítið magnað sem ég tók eftir í fyrsta skipti í kvöld. Eins illa og Sean Strickland lætur í aðdraganda bardaga, venjulega þegar þú ert með einstaklinga sem hegða sér svoleiðis, sérðu ummerki um hegðunina í bardögunum sjálfum. Hver er einbeittari og fagmannlegri meðan á bardaga stendur heldur en Strickland? Þegar hann meiðist er hann ekki að stinga út úr sér tunguna eða að segja að hann hafi ekki meitt sig. Maðurinn heldur einbeitingu og heldur áfram að setja pressu á andstæðing sinn. Það eru aldrei ummerki um hegðun hans utan við búrið þegar hann berst, algjör fagmaður allan tímann.Það er reyndar mjög áhugavert, held að ég hafi ekki séð þetta áður hjá bardagamanni sem hegðar sér eins og Strickland gerir í aðdraganda bardaga.
Dana White
Það er óvanalegt að Dana White hrósi bardagamönnum eftir að þeir tapa, sérstaklega þegar tapið er eins sannfærandi og tap Strickland gegn Du Plessis síðastliðinn laugardag. Strickland sýndi þó mikla þrautseigju í bardaganum og hrósaði White hörku hans sérstaklega.
Ég hef aldrei séð mann jafn stöðugan og fagmannlegan. Nefið á honum er brotið og hann réttur úr því sjálfur og heldur áfram að berjast. Þegar hann er sleginn með föstum höggum, hann fer ekki að hrista hausinn eða gera kjánalega hluti sem sumir gera eins og Mayorga. Ef þú horfir á einhverja bardagaíþrótt þá hefur þú séð þetta. Enginn er fagmannlegri á meðan á bardaga stendur heldur en þessi maður (Strickland).
Dana White
Það er nokkuð ljóst að Strickland er enn í uppáhaldi Dana White og, af viðbrögðum áhorfenda þegar hann tók hljóðnemann af Daniel Cormier, einnig hjá áhorfendum UFC. Strickland hefur nú sigrað einn af síðustu þremur bardögum og þarf hann að ná í sigra til að halda sér í toppbaráttu millivigtarinnar. Myndband af atvikinu þar sem Du Plessis slær Strickland og brýtur nef hans og Strickland réttir það svo við má sjá hér að neðan.
