Um helgina verður haldinn UFC 312 viðburður í Ástralíu en í aðalbardaga kvöldsins mætir millivigtarmeistarinn Dricus Du Plessis fyrrum millivigtarmeistaranum Sean Strickland. Þetta verður annar bardagi þeirra á milli en Du Plessis sigraði Sean Strickland með klofinni dómaraákvörðun í janúar 2024 og um leið tók hann af honum titilinn en ákvörðunin var mjög umdeild.
Du Plessis er meðvitaður um að mörgum hafi þótt hann tapa bardaganum og er hann æstur í að sanna fyrir áhorfendum að hann sé betri bardagamaður heldur en Strickland og um leið að hann hafi ekki fengið millivigtartitilinn gefins. Du Plessis er alveg ósammála því að fyrri bardaginn við Strickland hafi verið eitthvað vafamál og það sem kom honum á óvart var að dómaraákvörðunin hafi verið klofin en ekki einróma.
Það er því mikil eftirvænting fyrir því að þessir tveir berjist að nýju en Strickland er sannfærður um að hann hafi verið rændur í fyrri viðureign þeirra. Báðir menn hafa verið sjálfsöryggir í aðdraganda bardagans og báðir telja sig geta unnið bardagann sannfærandi. Það gæti þó farið svo að bætt verði við bardagann en nú ganga myndir um netheima af Strickland þar sem hann virðist vera með sár á hendinni en þegar myndin er stækkuð virðist þetta vera einkenni Staph-sýkingar.
Það hafa komið upp nokkur tilvik undanfarin ár þar sem hætt var við bardaga vegna Staph-sýkingar en Ilir Latifi viðurkenndi í viðtali eftir bardaga árið 2022 að hann hefði barist með Staph-sýkingu og var honum ákveðið þriggja mánaða keppnisbann vegna þess. Ekki er ljóst hvort Strickland er með Staph-sýkingu en það er vonandi að svo sé ekki því það er mikil spenna milli hans og Du Plessis og mikilvægt að fá úr því skorið hver sé besti bardagamaður millivigtarinnar.
