Header_Ad
Home Box Erika Nótt tapaði frumrauninni óvænt gegn hringstelpu

Erika Nótt tapaði frumrauninni óvænt gegn hringstelpu

0

Erika Nótt Einarsdóttir þreytti frumraun sína í Mitsfits boxing í kvöld. Erika mætti fyrrum hringstelpunni og fjögurra barna móður, Carla Jade, í 5 lotu bardaga í Copper Box Arena í London.

Erika Nótt byrjaði bardagann mjög vel og sýndi tæknilega yfirburði í bardaganum. Fyrstu tvær loturnar fóru skuldlaust til Eriku en þegar komið var inn í þriðju lotu virtist Erika aðeins vera að byrja að þreytast enda búin að eyða miklu púðri í fyrstu tvær loturnar og bar andlitið á Jade merki um það. Carla vann sig inn í bardagann með því að stytta höggin sín og stíga inn gegn Eriku og nota rammana sína til þess að halda henni niðri og úr stöðu.

Þannig varð bardaginn ótæknilegri og fóru loturnar að líta illa út fyrir Eriku þar sem Jade tókst að nota líkamlega yfirburði til þess að koma Eriku úr jafnvægi og láta hana líta illa út. Bardaginn fór allar fimm loturnar og þurfti dómaraúrskurð til að skera úr um sigurvegarann. Niðurstaðan var einróma dómaraákvörðun ríkjandi meistara.

Erika nótt var sjáanlega mjög hissa á niðurstöðunni, kallaði niðurstöðuna rán og sýndi Jade ekki mikla ást eftir að niðurstaðan var tilkynnt. Dómararnir dæmdu bardagann 48-47, 48-47 og 49-46.

Þó að bardaginn í heildina geti varla talist rán má setja stórt spurningamerki við síðasta dómarann sem tókst með einhverjum ótrúlegum hætti að dæma eina af fyrstu tveimur lotunum til Carla Jade.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version