Header_Ad
Home Innlent Fjórir titilbardagar á Glacier Fight Night

Fjórir titilbardagar á Glacier Fight Night

0

Eftirvæntingin og spennan er orðin hrikalega mikil eftir Glacier Fight Night 3 sem haldið verður í Framheimilinu Úlfársdal á laugardaginn. Á kvöldinu verða 10 bardagar í heildina en á aðalhluta kvöldsins verða fjórir titilbardagar og í virkilega spennandi viðureignum. Vigtunin mun fara fram kl 10:00 á föstudaginn í húsakynnum Reykjavík MMA og mun blaðamannafundurinn vera opinn öllum áhugasömum og fer fram í Kjarval kl. 14:00 eftir vigtunina.

Hrafn Þráinsson mætir Will Bean í ofurléttivigtarflokknum.

Sagan bölvaða nær loksins enda á laugardaginn kemur þegar Hrafn Þráinsson mætir Will Bean í þriðja skiptið í aðalbardaga kvöldsins. Eins og flestum er kunnugt hafa þeir mæst í tvígang áður án þess að fá endanlega sigurvegara. Bæði Hrafn og Bean virðast vera í fantagóðu formi og æstir í að sækja sigurinn og skrifa sig sem sigurvegara bölvuðustu viðureignar MMA sögunnar.

Mikael Aclipen mætir Charlie Lynn-Spencer upp á veltivigtartitilinn

Upprunalega stóð til að undrabarnið frá Mjölni, Mikael Aclipen, myndi mæta Íslandsvininum Samuel Hewitt sem barðist á GFN 1. Samuel dró sig úr leik og steig þá Charlie Lynch-Spencer inn í staðinn. Charlie vann silfur á heimsmeistaramótinu í MMA árið 2024 en talið er að spilling og pólitík hafi orðið til þess að hann hafi ekki unnið gullið.

Hekla Friðriksdóttir mætir Kerrta Saarnisaari upp á Bantamvigtartitilinn

Hekla Friðriksdóttir fær annað tækifæri til að næla sér í GFN belti á laugardaginn. Viðureignin átti upprunalega ekki að vera titilbardagi en eftir að Hekla hélt út til Danmerkur og sigraði þar ríkjandi Evrópumeistara Caroline Moller með armbar í fyrstu lotu þótti mótshöldurum Hekla eiga nægilega mikla innistæðu til þess að gera bardagann að titilbardaga. Kerrta Saarnisaari er ríkjandi Norðurlandameistari og hefur sjálf bæði unnið og tapað gegn Caroline Moller.

Vitali Korshak ver léttvigtartitilinn gegn Souleymane „The Greedy“ Kacimi

Vitali Korshak vann titilinn á GFN 2 fyrir hálfu ári síðan gegn Frakkanum Thomas Murris. Vitali barðist svo í Englandi þar sem hann varði Caged Steel titilinn sinn gegn Ali Albazi og núna á laugardaginn mun hann verja titil sinn gegn Souleymane Kacimi. Sá er einnig franskur en er okkur Íslendingum ókunnugur.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version