Home Erlent Gamla myndbandið: Jose Aldo kaupir sín fyrstu jakkaföt

Gamla myndbandið: Jose Aldo kaupir sín fyrstu jakkaföt

0

jose aldo jakkafötJose Aldo mætir Conor McGregor á laugardaginn á UFC 194. Í tilefni þess rifjum við hér upp gamalt myndband af Aldo þegar hann keypti sín fyrstu jakkaföt.

Jose Aldo ólst upp í mikilli fátækt og átti fjölskyldan hans lítið fé milli handanna. Aldo var fjaðurvigtarmeistari WEC bardagasamtakanna en þegar WEC voru innleidd í UFC árið 2011 varð Aldo fyrsti (og eini hingað til) fjaðurvigtarmeistari UFC.

Það þurfti því að kaupa jakkaföt á meistarann en þetta voru fyrstu jakkaföt Aldo. Eins og sést á myndbandinu getur hann ekki hætt að hlæja enda ansi ólíkt því sem hann upplifði á yngri árum.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version