Home Erlent Gilbert Burns mætir Stephen Thompson í júlí

Gilbert Burns mætir Stephen Thompson í júlí

0

Þeir Gilbert Burns og Stephen Thompson mætast á UFC 264 í júlí. Þetta verður mikilvægur bardagi í veltivigtinni og gæti tryggt öðrum hvorum titilbardaga.

Gilbert Burns tapaði fyrir Kamaru Usman um veltivigtartitilinn í febrúar. Hann ætlar greinilega ekki að sleikja sárin sín lengi og er búinn að bóka sinn næsta bardaga. Það verður gegn Stephen Thompson sem hefur unnið tvo bardaga í röð.

Bardaginn verður á UFC 264 þann 10. júlí en sama kvöld mætast þeir Conor McGregor og Dustin Poirier.

Flestir topp bardagamennirnir í veltivigt eru því bókaðir en eftir situr Colby Covington. Jorge Masvidal mætir Kamaru Usman um veltivigtartitilinn í lok apríl en Covington segist vera varamaður fyrir bardagann án þess að það hafi verið staðfest af UFC.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version