Home Forsíða Gunnar Nelson vinsæll á Twitter í Írlandi

Gunnar Nelson vinsæll á Twitter í Írlandi

0

Írskir bardagaáhugamenn vilja greinilega fá Gunnar Nelson á UFC í Dublin í sumar þar sem #GunniForUfcDublin er eitt vinsælasta hashtaggið á Twitter í Írlandi í dag.

Þegar þetta er skrifað hafa 339 Twitter notendur endurtístað (e. retweet) að Gunnar eigi að berjast í Írlandi. Samkvæmt Trendsmap Ireland er hashtaggið #GunniForUfcDublin eitt vinsælasta hashtaggið á Írlandi.

gunni twitter

UFC heldur til Dublin þann 19. apríl og eru margir sem vilja sjá Gunnar berjast á því kvöldi. Allar líkur eru á að Íslandsvinurinn og æfingafélagi Gunnars, Conor McGregor, berjist í Dublin það kvöld. Dana White, forseti UFC, hefur eflaust fengið skilaboðin enda margir sem hafa merkt hann á tísti sínu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version