Header_Ad
Home Forsíða Hætti í miðjum bardaga og klifraði úr búrinu!

Hætti í miðjum bardaga og klifraði úr búrinu!

0

Ansi undarlegt atvik átti sér stað í Brasilíu um síðastliðnu helgi. Evilasio Silva mætti þar Claudinei Angelo í JF Fight Evolution keppninni. Angelo missti góminn úr sér og stöðvaði dómarinn því bardagann um tíma og leyfði Angelo að setja góminn aftur í sig. Angelo missti góminn aftur úr sér og þurfti dómarinn því aftur að stöðva bardagann. Angelo missti svo góminn úr sér í þriðja sinn en í þetta skiptið virtist Angelo spíta gómnum úr sér. Dómarinn neitaði því að stöðva bardagann og vildi Angelo þá láta gera hlé á bardaganum, en hann var greinilega að láta dómarann gera hlé á bardaganum svo hann gæti jafnað sig eftir höggin sem hann fékk á sig. Þegar dómarinn neitaði að stöðva bardagann ákvað Angelo að hætta! Hann reyndi að opna hliðið úr búrinu sem var læst og því næst klifraði hann úr búrinu og gekk inn í búningsklefa!

Sjón er sögu ríkari, hér er myndbandið.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version