Hekla Friðriksdóttir keppti á MMA Championship 40 á laugardaginn þar sem hún mætti Nicole Vernon í sínum öðrum MMA bardaga á áhugamannaferlinum. Nicole var að berjast sinn fyrsta MMA bardaga en hún er með reynslu í kickboxi og þokkalega góð í því sporti ef við miðum við frammistöðuna hennar í gær. Hekla stóð sig frábærlega í bardaganum og sigraði Nicole með armbar uppgjafartaki rétt áður en dómararnir þurftu að gefa sitt álit á viðureigninni.
Nicole sló fyrsta höggið eftir 0,1 sekúndu, strax eftir að hanskarnir snertust til að hefja bardagann. Nicole virtist vera með lengri faðm af þeim tveimur sem hún nýtti vel þegar bardaginn fór fram í standandi stöðu. Hekla tapaði líklega fyrstu lotunni þar sem Nicole lenti fleiri og betri höggum gegn Heklu og var það hægri hendi Nicole sem fór með aðalhlutverkið í lotunni. Það varð til þess að Hekla keyrði Nicole upp við búrið en hún varðist vel og tókst Heklu ekki að gera mikið í fyrstu lotu.
Í annarri lotu fór planið hennar Heklu að ganga upp. Nicole var að vinna bardagann standandi en Hekla keyrði hana ítrekað upp við búrið til að trufla flæðið hennar og reyna að koma henni í gólfið. Um miðja aðra lotu tókst Heklu að loka höndunum fyrir neðan mjaðmirnar á Nicole sem endaði í gólfinu í kjölfarið. Hekla lét ground n pound dynja yfir hana úr half guard og endaði lotan þannig.
Bardaginn var að öllum líkindum 1 – 1 komandi inn í þriðju lotu. Nicole lenti nokkrum góðum höggum á Heklu og var það aftur hægri hendin hennar Nicole sem var að finna skotmarkið. Heklu tókst að ná Nicole niður í gólfið í miðju búrinu og var ekki lengi að koma sér í mount. Nicole virkaði býsna berskjölduð þar og lét Hekla höggin dynja yfir Nicole. Þegar 10 sekúndur voru eftir af bardaganum ákvað Hekla að reyna að klára bardagann og krækti vinstri hendinni sinni utan um hægri hendina hennar Nicole til að setja upp armbar. Það heppnaðist glimrandi vel og gat Nicole ekki annað en tappað.
Hekla hefði líklega unnið bardagann 2 – 1 miðað við hvernig bardaginn þróaðist en Hekla hafði engan áhuga á því að nýta sér dómaraþjónustu í þessum bardaga frekar en í sínum fyrsta, sem hún kláraði einnig með armbar.
