Home Erlent Hlustaðu á hornið hjá Diaz í bardaganum gegn Conor McGregor

Hlustaðu á hornið hjá Diaz í bardaganum gegn Conor McGregor

0
nate conor

Nate Diaz sigraði Conor McGregor um helgina með hengingu í 2. lotu. Það var mikill hiti í mönnum í aðdraganda bardagans og má heyra gífurlega gleði í horninu hjá Diaz er bardaganum var lokið.

Í klippunni heyrist mest í Jake Shields en Shields barðist lengi vel í UFC og hefur æft með Diaz bræðrunum árum saman. Það má heyra að Shields er æstur en hann og McGregor áttu í orðaskiptum í aðdraganda bardagans þar sem McGregor sagði hann vera sterahaus.

Hér að neðan má heyra í horninu og er gaman að heyra taumlausa gleðina þegar sigurinn var í höfn.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version