Þar sem árinu er að ljúka með fallegum hefðum og náinni fjölskyldustund er vel við hæfi að halda í heilaga bardagahefð og velja bardagafólk ársins. Fimmta Lotan hefur fylgst með íslensku og erlendu bardagafólki yfir árið og margt minnisstætt sem stendur upp úr.
Hlustendur geta kosið um sína uppáhalds bardaga og bardagafólk ásamt því að kjósa nýliða ársins bæði heima og úti. Kosningin fer fram á Instagram-síðu Fimmtu Lotunnar. Niðurstöðurnar verða svo ræddar í Áramótaannál Fimmtu Lotunnar sem kemur út á þriðjudaginn.
Verið með og kjósið í story. Gleðilega hátið!
