Það var tilkynnt fyrir skömmu dagsetning fyrir næsta Icebox viðburð en hann fer fram 12. júní og hafa mótshaldarar ákveðið að færa sig um set úr Kaplakrika, þar sem Icebox hefur áður verið haldið, og á Vellina í körfuboltasalinn þar og má búast við að öllu verði til tjaldað á tíunda Icebox viðburðinum.
Litlar upplýsingar eru opinberar enn sem komið er en Davíð Rúnar Bjarnason, mótshaldari og þjálfari Hnefaleikafélags Reykjavíkur sagði í samtali við MMA Fréttir að hann er í samskiptum við erlenda hnefaleikaklúbba og vonast eftir að fá andstæðinga fyrir flesta af okkar bestu og efnilegustu ólympísku hnefaleikamönnum og konum.

Körfuboltavöllurinn á Völlunum