Jeremy Stephens stöðvaði Eddie Alvarez í 3. lotu á Knuckle Mania 5 sem haldið var í Philadelphia í gær/nótt. Conor McGregor mætti uppí hring og sagðist vilja mæta Stephens næst og bað David Feldman eiganda BKFC að finna dagsetningu.
Bardaginn var jafn framan af en yfirburðir Stephens fóru að koma betur í ljós í 3. lotu. Stephens slær Alvarez tvisvar sinnum niður í 3. lotunni og þó Alvarez hafi komist í gegnum talningar dómarans þá ákvað hornið hans að kasta inn handklæðinu milli 3. og 4. lotu. Alvarez stóð upp eftir að hafa verið sleginn niður í fyrra skiptið og gaf áhorfendum tvo þumla upp en eftir seinna höggið sem sló hann niður var útlitið annað.
Mögulega var þetta stærsti BKFC bardaga til þessa þegar þessir tveir gömlu UFC reynsluboltar mættust en Stephens hefur barist 34 sinnum fyrir UFC. Eddie Alvarez barðist þó aðeins 8 sinnum á 4 árum í UFC en allir hans bardagar voru gegn andstæðingum í hæsta gæðaflokki, má þar helst nefna Conor McGregor, Max Holloway, Dustin Piorier og Justin Gaethje. Næsti BKFC bardagi gæti þó orðið enn stærri og slegið öll met ef Conor McGregor stendur við orð sín og mætir Jeremy Stephens en Stephens hefur unnið alla sína 3 BKFC bardaga til þessa.
Ben Rothwell, annar reynslubolti úr UFC sem barðist þar 17 sinnum, mætti í sinn 4. BKFC bardaga sem hann kláraði á hálfri mínútu. Hann hefur núna unnið alla sína 4 í BKFC og klárað þá alla í þokkabót.
