Home Erlent Joe Pyfer hugleiddi sjálfsvíg vikum fyrir sigurinn gegn Adesanya

Joe Pyfer hugleiddi sjálfsvíg vikum fyrir sigurinn gegn Adesanya

0

Joe Pyfer vakti mikla athygli eftir sigur sinn á UFC Seattle þegar hann opnaði sig um erfiðan tíma utan búrsins. Eftir bardagann sagðist hann hafa verið á mjög slæmum stað andlega aðeins nokkrum vikum fyrr og að hann hefði jafnvel hugleitt að taka eigið líf.

Pyfer náði stærsta sigri ferilsins þegar hann kláraði fyrrum meistara Israel Adesanya eftir að hafa lent undir framan af í bardaganum. Í annarri lotu sneri hann taflinu við, meiddi Adesanya og kláraði hann með höggum á gólfinu.

Í viðtali eftir bardagann sagði Pyfer að hann hefði fundið nýjan tilgang og að trú hefði hjálpað sér að komast í gegnum erfiðleikana. Ummælin vöktu strax mikla athygli og voru rædd á blaðamannafundinum eftir kvöldið.
Forseti UFC, Dana White, brást við þegar hann var spurður út í málið og sagðist vera sleginn yfir því að heyra að bardagamaður hefði verið í slíkri stöðu aðeins stuttu fyrir bardaga. Hann hrósaði þó einnig frammistöðu Pyfer og sagði sigurinn afar sterkan gegn einum af bestu millivigtarmönnum sögunnar.

Sigurinn gæti reynst vendipunktur á ferli Pyfer, sem hefur nú sett sig í stöðu meðal áhugaverðustu nafna í millivigtinni. Um leið hefur saga hans utan búrsins vakið mikla athygli og sýnir hversu miklar andlegar áskoranir geta fylgt jafnvel íþróttamönnum á hæsta stigi.

MMA Fréttir vilja benda á að fyrir þau sem glíma við sjálfsvígshugsanir eða líða illa er hægt að leita til Píeta samtakanna, sem bjóða upp á stuðning og aðstoð. Það er alltaf hægt að fá hjálp og enginn þarf að ganga í gegnum slíkt einn. https://pieta.is/

Pyfer hefur áður opnað sig um mjög erfiða æsku og alvarlegt ofbeldi af hálfu föður síns, sem hann segir hafa hafist þegar hann var aðeins um eins árs gamall. Í viðtali hjá Joe Rogan lýsti hann því hvernig uppvöxtur hans einkenndist af óöryggi og áföllum sem mótuðu hann bæði andlega og tilfinningalega. Hann hefur einnig rætt um flókin tilfinningatengsl við föður sinn, þar sem hann leit upp til hans sem barn en áttaði sig síðar á því að hann hefði verið beittur misnotkun. Samband þeirra er í dag rofið og hefur Pyfer sagt að reynslan hafi haft djúpstæð áhrif á líf hans og þróun sem manneskja og íþróttamaður.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version