Home Erlent Jon Jones ekki spenntur fyrir að mæta Dominick Reyes

Jon Jones ekki spenntur fyrir að mæta Dominick Reyes

0

Jon Jones er ekki með staðfestan bardaga á næstunni. Dominick Reyes er mögulega næstur í röðinni en Jones segist ekki vera spenntur fyrir því.

Léttþungavigtarmeistarinn Jon Jones barðist síðast í júlí þegar hann sigraði Thiago Santos. Jones mun ekki berjast aftur fyrr en á næsta ári og er óvíst hver næsti andstæðingur hans verður.

Dominick Reyes, sem sigraði Chris Weidman um síðustu helgi, vill fá titilbardaga gegn Jon Jones næst. Jones virðist hins vegar vera lítið spenntur fyrir því en hann var duglegur á Twitter í gær.

Það verður áhugavert að sjá hver næstu skref Jon Jones verða en hann hefur lengi talað um að fara upp í þungavigt.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version