Home Innlent Magnús Freyr Jónasson berst á UFC Fight Pass um helgina

Magnús Freyr Jónasson berst á UFC Fight Pass um helgina

0

Íslendingurinn Magnús Freyr Jónasson mun berjast sinn níunda bardaga um helgina þegar hann mætir Sayfullah Bagiev á FCR 27 í Örebro, Svíþjóð á morgun (laugardag) og verður bardaginn í beinni útsendingu á UFC Fight Pass.

Magnús freyr er með áhugamannametið 5-3 í MMA og hefur verið ansi duglegur að keppa á stuttum tíma í sportinu. Magnús byrjaði í bardagaíþróttum sextán ára gamall sem leið til að létta sig en hann var orðinn 90kg og fannst hann ekki geta haldið þannig áfram. Hann byrjaði því að grappla með vinum sínum og fann fljótt mikinn áhuga fyrir sportinu. Hann mætti hvern einasta dag í gymmið og eftir þrjá mánuði var hann byrjaður að keppa. Hann keppti reglulega í Jiu-Jitsu í tvö ár áður en hann skipti yfir í MMA. Hann hefur núna æft MMA í 2 ár, segist stefna langt og á laugardaginn fer hann í sinn níunda bardaga.

Bardaginn á laugardaginn verður haldinn í 73kg catchweight, semsagt samið um þyngd utan hefðbundins þyngdarflokks en það er á bilinu milli léttvigtar og veltivigtar, nokkuð nálægt því sem kallað er Super Lightweight. Magnús Freyr byrjaði að keppa í veltivigtinni (77kg) og barðist 5 sinnum í þeim þyngdarflokki en barðist svo síðustu tvo í léttvigty (70kg). Magnús ætlar þó aftur upp í veltivigt fyrir næsta bardaga en segir að stefnan sé þó að fara aftur niður í léttvigt þegar hann tekur skrefið yfir í atvinnumennsku.

Magnús Freyr flutti til Svíþjóðar 7 ára gamall, árið 2011, en hann er tvítugur í dag. Magnús kemur á hverju ári heim til Íslands og segist alltaf sakna að búa á Íslandi.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version