Home Erlent Michael Bisping telur tíma Israel Adesanya á toppnum vera liðinn

Michael Bisping telur tíma Israel Adesanya á toppnum vera liðinn

0

Fyrrum millivigtarmeistari UFC og núverandi sjónvarpssérfræðingur samtakanna hefur tjáð sig um stöðu annars fyrrum millivigtarmeistara UFC, Israel Adesanya, en sá síðarnefndi tapaði með tæknilegu rothöggi gegn Nassourdine Imavov um liðna helgi.

Töluverð eftirvænting ríkti fyrir bardaga Adesanya við Imavov en aðdáendur Adesanya voru sigurvissir fyrir bardagann og átti bardaginn að marka endurkomu Adesanya á meðal þeirra bestu og sumir höfðu gert sér hugmyndir um að hann myndi hreppa titilinn að nýju. Þess í stað hefur Adesanya stimplað sig úr toppbaráttunni að mati Michael Bisping en hann tjáði sig um stöðu Adesanya í útsendingu ESPN þar sem Bisping sagði að hans mati yrði Adesanya ekki meistari aftur í UFC. Ég meina það af fullri virðingu, sagði Bisping, hann er ótrúlegur bardagamaður og mun vera í frægðarhöll UFC (e. Hall of Fame) en tími hans á toppi deildarinnar er liðinn.

Bisping telur að Adesanya hafi of marga kílómetra á mælinum eftir langan feril bæði í UFC og sparkboxi og ekki bara út af bardögunum heldur líka út af æfingum og æfingabúðum og sagði Bisping að æfingabúðir fyrir bardaga væru stundum verri fyrir líkamann en bardaginn sjálfur. Það er mikilvægt að fá mikla mótspyrnu í æfingabúðum annars bætirðu þig aldrei og þróar með þér slæmar venjur, sagði Bisping. Í æfingabúðum ertu að taka högg á hökuna og stundum eru höggin of hörð og Adesanya lenti í því um helgina þar sem Imavov sló hann með föstu höggi sem vankaði Adesanya greinilega. Bisping segir að blandan af föstum höggum í bardögum og miklu álagi á æfingum og æfingabúðum sé farin að sjást á Adesanya og finnst ólíklegt að hann eigi afturkvæmt á topp millivigtar UFC.

Það er erfitt að vera ósammála þessu sjónarmiði Bisping en Adesanya sem eitt sinn var yfirburðarbardagamaður í millivigt UFC og virtist á löngum köflum ósigrandi, hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Í síðustu fimm bardögum hefur Adesanya tapað fjórum, þar af tvisvar með rothöggi eða tæknilegu rothöggi. Mögulega er hakan á Adesanya farin að bera þess merki að hann hafi átt langan og farsælan feril í blönduðum bardagalistum og sparkboxi eða kannski er Imavov með dýnamít í höndunum en hvernig sem því líður er hann orðinn langt á topp deildarinnar. Það eru fáir sem njóta jafn mikilla Dana White fríðinda og Adasanya og er því erfitt að útiloka hann alveg frá titilmyndinni.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version