Cole „Wavy MMA“ Johnson hefur loksins upplýst sannleikann um einn furðulegasta MMA-söguburð síðustu daga. Johnson, sem er 24 ára gamall áhugamaður með einn MMA-bardaga að baki, hafði vakið gríðarlega athygli með því að halda því fram að hann væri að fara að berjast við simpansa. Nú hefur komið í ljós að bardaginn var aldrei raunverulegur og Johnson segir að allt hafi verið hugsað sem stórt gabb.
Upphaflega byrjaði sagan sem brandari hjá Johnson. Hann birti myndband þar sem hann sagðist geta sigrað simpansa og sagði meðal annars að hann væri tilbúinn að taka áhættuna fyrir rétta upphæð. Myndbandið fór á flug og samkvæmt Johnson fór fólk fljótlega að hafa samband við hann með alvöru peningatilboð. Á einum tímapunkti sagðist hann hafa fengið tilboð upp á 500.000 dollara, eða rúmlega 70 milljónir íslenskra króna.
Sagan varð síðan enn stærri þegar vefsíða var sett upp fyrir „bardagann“ og niðurtalning hófst fyrir 11. september. Allt leit út fyrir að um alvöru bardaga væri að ræða og fólk fór að ræða af fullri alvöru hvort Johnson ætti möguleika gegn simpansa. Sérfræðingar höfðu jafnframt varað við því að slíkur bardagi gæti leitt til alvarlegra eða jafnvel lífshættulegra meiðsla.
En þegar kom að því að „bardaginn“ átti að hefjast gerðist ekkert. Vefsíðan var tekin niður og síðar kom í ljós að verkefnið var í raun hluti af stærra gabb. Johnson segir nú að markmiðið hafi verið að fá fólk til að smella á síðuna og hann heldur því fram að um milljón manns hafi reynt að horfa á það sem þeir héldu að væri raunverulegur bardagi.
Johnson hefur einnig viðurkennt að upphaflega myndbandið hafi einfaldlega verið gert í gríni. Hann bjóst aldrei við því að hugmyndin myndi taka svona mikið flug. Þegar fólk fór að bjóða honum hundruð þúsunda dollara fyrir að berjast við simpansa varð brandarinn hins vegar að stærri internet-sögu en hann hafði líklega sjálfur séð fyrir sér.
Þetta var þó ekki bara saklaust grín. Vefsíðan var einnig tengd við fjáröflun og crypto-gjaldmiðil og virðist hafa verið hönnuð til að ná til sem flestra. Hún var tekin niður af Trust & Safety-teymi þjónustunnar sem hýsti síðuna. Það gerði það að verkum að „bardaginn“ hvarf nánast á sama augnabliki og hann átti að hefjast.
