Home Erlent MMA samfélagið syrgir Kevin Randleman

MMA samfélagið syrgir Kevin Randleman

0

Eighth Annual Fighters Only World Mixed Martial Arts AwardsÁ fimmtdagskvöldið lést Kevin Randleman eftir hjartaáfall. Hér má sjá hvernig margir kollegar hans minnast hans.

Kevin Randleman var einstaklega vel liðinn í MMA samfélaginu. Hann var algjört skrímsli í búrinu en einstaklega léttur og skemmtilegur maður utan búrsins.

Á síðustu dögum hafa ótal sögur af honum skotist upp á yfirborðið sem sýna hvaða mann hann hafði að geyma. Randleman gaf sér alltaf tíma fyrir aðdáendur sína og mætti meira að segja í 13 ára afmæli aðdáanda síns þegar hann var á toppi ferilsins.

Rothöggið á Mirko ‘Cro Cop’ Filipovic var sennilega besti sigur ferilsins. Cro Cop sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu hans á Twitter í gær.

Randy Couture tók þungavigtartitilinn af Randleman og birti þennan póst á Instagram í gær.

Bas Rutten var góður vinur Randleman og á margar góðar sögur af þeim saman. Hann mun tileinka sérstakt hlaðvarp í næstu viku til Randleman þar sem hlustendur geta heyrt margar frábærar sögur af Randleman.

Yesterday @MauroRanallo and myself finished our podcast, we ate something and decided to go online. Mauro freaks out…

Posted by Bas Rutten on Friday, February 12, 2016

Í næstu viku verður Kevin Randleman goðsögn vikunnar og munum við þá fara ítarlega yfir feril hans.

Í lokin er vert að rifja upp þegar Randleman óskaði eftir að fá að drekka vodka með Fedor Emelianenko eftir bardaga þeirra í Pride.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version