Home Forsíða Myndband: Conor McGregor á opinni æfingu í gær

Myndband: Conor McGregor á opinni æfingu í gær

0
Conor McGregor
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Conor McGregor var með opna æfingu í gær fyrir fjölmiðlamenn í kringum UFC 187. McGregor æfir nú í Las Vegas fram að bardaga sínum í júlí.

Conor McGregor æfir nú í The Ultimate Fighter æfingaaðstöðunni í Las Vegas en þar fara fram allar upptökur á þáttaröðinni. McGregor hefur aðstöðuna út af fyrir sig og sitt lið fram að bardaga.

Í gær fór fram opin æfing í aðstöðunni þar sem fjölmiðlar fengu tækifæri til að sjá Írann æfa. Gríðarlegur fjöldi fjölmiðlamanna er nú í Las Vegas vegna UFC 187 og ákvað UFC að halda opna æfingu hjá McGregor.

Conor McGregor berst um fjaðurvigtartitilinn gegn Jose Aldo á UFC 189. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og fer fram þann 11. júlí.

Eftir æfinguna ræddi hann við fjölmiðla.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version