Home Erlent Myndband: Sjáðu Cormier fá slæmu fréttirnar af Jon Jones

Myndband: Sjáðu Cormier fá slæmu fréttirnar af Jon Jones

0
Daniel Cormier

Í nýjasta Embedded þættinum má sjá þegar Dana White greinir Daniel Cormier frá slæmu tíðindunum með Jon Jones. Eins og margoft hefur komið fram fundust tvö ólögleg efni í lyfjaprófi Jones og fær hann því ekki að mæta Cormier um helgina eins og til stóð.

Daniel Cormier var einfaldlega eyðilagður yfir fréttunum enda hafði hann lagt gríðarlega mikið á sig í undirbúningi fyrir bardagann gegn Jon Jones. Cormier fær þó að mæta Anderson Silva á morgun á UFC 200 en Silva kemur inn með aðeins tveggja daga fyrirvara.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version