Home Erlent Nick Diaz handtekinn um síðustu helgi

Nick Diaz handtekinn um síðustu helgi

0

Bardagamaðurinn Nick Diaz var handtekinn síðasta föstudag. Diaz er sakaður um heimilisofbeldi og þarf að mæta fyrir dómara í júní.

Bardagamaðurinn vinsæli var handtekinn á föstudaginn sakaður um að kyrkja fórnarlambið og fyrstu gráðu heimilisofbeldi. Hinn 34 ára Diaz greiddi 18.000 dollara tryggingu og var látinn laus á föstudagskvöldið. Diaz þarf að fara fyrir dómara þann 6. júní.

Nick Diaz hefur ekki barist síðan í febrúar 2015 og fátt sem bendir til að hann sé á leið í búrið þó hann sé enn samningsbundinn UFC. UFC sendi frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að málið yrði tekið til rannsóknar.

Vinur Nick Diaz heldur því fram á Instagram að fórnarlambið sé eltihrellir og hafi áreitt Diaz um árabil.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version