Home Erlent Ótrúlegt augnablik þegar Grasso rotaði Barber og fylgdi eftir með uppgjafartaki

Ótrúlegt augnablik þegar Grasso rotaði Barber og fylgdi eftir með uppgjafartaki

0

Alexa Grasso kláraði Maycee Barber í fyrstu lotu með einu magnaðasta finishi sem sést hefur í kvenna MMA, eða jafnvel bara MMA yfir höfuð, þegar þær tvær mættust í endurleik í co-main bardaganum á bardagakvöldi UFC í Seattle í nótt.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem þær mættust, en Grasso hafði einnig betur í fyrri viðureign þeirra sem fór fram árið 2021. Sá bardagi fór alla leið og endaði með einróma dómaraúrskurði Grasso í vil, en það var jafnframt annar UFC-bardagi beggja kvenna.

Alexa Grasso þurfti aðeins eina lotu til að klára Maycee Barber í bardaga sem hófst rólega en endaði á algjörri sprengju. Eftir varfærna byrjun þar sem báðar voru að þreyfa fyrir sér og finna fjarlægðina, tók bardaginn skyndilega mikla beygju þegar Grasso fann opnunina.

Grasso lenti hreinu vinstri beinu höggi sem felldi Barber samstundis og fór beint á eftir henni niður í gólfið. Án þess að hika tók hún bakið og læsti rear naked choke uppgjafartaki, þrátt fyrir að Barber virtist þegar vera meðvitundarlaus eftir höggið. Barber lá lengi hreyfingarlaus eftirá áður en hún fór að ná áttum, en allt benti til þess að höggið sjálft hefði í raun lokið bardaganum áður en uppgjafartakið var klárað og var sigurinn tilkynntur sem rothögg.

Þetta var eitt af þeim augnablikum sem fá mann til að stökkva upp úr sætinu, þar sem tímasetning, nákvæmni og grimmd Grasso komu saman í einni samfelldri hreyfingu. Finishið verður án efa talið meðal þeirra eftirminnilegustu á árinu og allra tíma í kvennaflokki UFC.
Grasso sýndi með þessari frammistöðu að hún er ekki aðeins tæknilega sterk heldur einnig hættuleg á öllum sviðum, og minnti alla á hversu hættuleg hún getur verið þegar hún finnur taktinn.

Eftir bardagann sagði Grasso að það væri draumur hennar að fá UFC til heimaborgar sinnar Guadalajara og vonaðist til að geta barist þar fyrir framan sitt fólk.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version