
Í viðtali á ESPN og á Twitter tilkynnti Dana White síðan að Palhares myndi ekki berjast framar fyrir UFC. Þetta er í ekki í fyrsta skipti sem UFC rekur bardagamann með þessum hætti, áður hefur Paul Daley verið rekinn fyrir að kýla andstæðing eftir að bardaginn var búinn.
Palhares hefur áður neitað að sleppa “heel hook” en það var á móti Tomasz Drwal á UFC 111, hann fékk þá 90 daga keppnisbann. Einnig sýndi hann af sér mjög einkennilega hegðun í bardaganum á móti Dan Miller á UFC 134 þegar hann hoppaði reglulega uppá búrið og fagnaði sigri þó svo að bardaginn væri ennþá í gangi. Ennfremur sýndi hann afar sérstaka framkomu á ADCC 2011 í Nottingham innan sem utan vallar.
Palhares var litríkur karakter í UFC og eflaust margir sem munu sjá mikið eftir þessum mikla fótalása meistara.
Er hægt að sjá þetta einhversstaðar?
súrt hjá honum mar.. 6 millur í bónus og starfið farið.. eftir að hafa unnið á 30 sec.