Home Podcast Tappvarpið 20. þáttur – GSP, yfirvofandi breytingar hjá UFC, Ronda Rousey og...

Tappvarpið 20. þáttur – GSP, yfirvofandi breytingar hjá UFC, Ronda Rousey og fleira

0

Tappvarpið podcastNýjasta Tappvarpið er komið á netið. Í þættinum töluðum við um mál Georges St. Pierre, óánægjuna sem virðist ríkja í UFC þessa stundina, Rondu Rousey og þær breytingar sem virðast vera framundan í UFC.

Georges St. Pierre lýsti því yfir á mánudaginn að hann hefði rift samningi sínum við UFC. UFC sendi skömmu síðar frá sér yfirlýsingu þess efnis að GSP sé enn undir samningi við UFC og gæti málið dregist á langinn.

Margir bardagamenn hafa lýst yfir óánægju sinni með UFC þessa dagana og fórum við aðeins yfir það. Þá virðast breytingar vera að eiga sér stað á rekstri UFC með komu nýrra eigenda og verður athyglisvert að fylgjast með framvindunni.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan eða í hlaðvarpsþjónustu iTunes.

https://soundcloud.com/mma_frettir/tappvarpi-20-attur-gsp-oanaegjan-i-ufc-breytingaskeii-og-ronda-rousey

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version