Home Erlent McKinney kláraði Nelson á 24 sekúndum

McKinney kláraði Nelson á 24 sekúndum

0

Terrance McKinney þurfti aðeins 24 sekúndur til að klára Kyle Nelson þegar aðalhluti kvöldsins hófst á bardagakvöldi UFC Seattle í nótt þar sem Israel Adesanya og Joe Pyfer mættust í aðalbardaga kvöldsins.

McKinney byrjaði bardagann af miklum krafti, setti upp höggin með jabbi og þvingaði Nelson strax til að bakka.
Stuttu síðar lenti hann svo hreinu vinstri hásparki í höfuðið sem felldi Nelson niður. McKinney fylgdi því strax eftir með ground and pound þar sem Nelson náði aldrei að svara fyrir sig, heldur huldi sig á meðan höggin dundu yfir honum.

Dómarinn Herb Dean gaf Nelson tækifæri til að lifa af en þegar engin virk vörn var til staðar var bardaginn stöðvaður.
McKinney heldur áfram að sýna hversu hættulegur hann er í fyrstu lotu í léttvigtinni, en hann leitar nánast alltaf beint að finishi frá fyrstu sekúndu og lætur aldrei tækifærið til að enda bardaga fara fram hjá sér.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version