Home Innlent Tvö belti á tveimur vikum fyrir Vitalii Korshak

Tvö belti á tveimur vikum fyrir Vitalii Korshak

0

Glacier Fight Night meistararnir tveir, Vitalii Korshak og Ali Albazi, mættust fyrir áhugamanna léttvigtartitil Caged Steel á Caged Steel 42 sem fram fór í gærkvöldi í Doncaster, Englandi. Vitalii sigraði bardagann á klofinni dómaraákvörðun eftir hörku bardaga og hefur því unnið tvö belti á tveimur vikum og bætt áhugamannamet sitt í MMA í 10-0.

Bardaginn milli Vitalii og Ali kom til með skömmum fyrirvara en hann var staðfestur minna en viku fyrir sjálft bardagakvöldið. Ali sigraði Hákon Örn Arnórsson frá Reykjavík MMA í aðalbardaga Glacier Fight Night sléttum tveimur vikum áður og hafði Vitalii því harma að hefna fyrir hönd æfingafélaga síns. Ali hafði einnig mætt og sigrað Baldur Loga Sigurðsson í frumraun sinni í mars 2023 og var þetta því í þriðja skipti sem þjálfararnir Bjarki Þór Pálsson og Magnús Ingi Ingvarsson undirbjuggu sig að mæta honum.

Báðir menn hófu bardagann af miklum krafti og voru greinilega báðir mjög staðráðnir að sækja sigurinn og beltið. Báðir menn búa yfir glímugetu á mjög háu stigi og tókst báðum mönnum að taka hinn niður en vörðust einnig fellutilraunum hvors annars vel. Ali var ákveðinn að halda pressunni á Vitalii meðan þeir stóðu og skiptust á höggum en Vitalii kom yfirleitt betur útur þeim höggskiptum.

Ali var mjög ósáttur við ákvörðun dómarans og lét óánægju sína vel í ljós að bardaga loknum. Vitalii sagði þó í viðtali við MMA Fréttir að hann hafði verið öruggur um að hann fengi sigurinn dæmdan í sitt horn þar sem hann náði fleiri fellum og hafi haft stjórn á bardaganum í lengri tíma en Ali.

Það verður spennandi að fylgjast með hvaða stefnu ferilinn hans Vitalii tekur en hann sagðist vera stöðugt að þróast sem bardagamaður og það muni þurfa koma okkur á óvart hvað gerist næst.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version