Home Uncategorized UFC 256 Embedded: 1. þáttur

UFC 256 Embedded: 1. þáttur

0

UFC 256 fer fram um helgina þar sem barist verður um fluguvigtartitil UFC.

Deiveson Figueiredo mætir Brandon Moreno í aðalbardaga kvöldsins á laugardaginn. Meistarinn Figueiredo getur komist á spjöld sögunnar en hann barðist síðast þann 21. nóvember. Það verða því aðeins 21 dagur á milli titilbardaga hjá honum þegar hann berst á laugardaginn og er það skemmsti tími sem hefur liðið á milli titilbardaga í UFC.

Í 1. Embedded þættinum fyrir UFC 256 fáum við bara að fylgjast með Figueiredo og Brandon Moreno. Báðir hafa þeir dvalið í Las Vegas á milli bardaganna. Í þættinum tekur Figueiredo æfingu í Performance Institute UFC, fer síðan í bardagaklippinguna sína og að lokum sjáum við Brandon Moreno máta jakkaföt.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version