Home Erlent UFC molar: Werdum mætir Miocic, Ellenberger úr UFC og Shogun meiddur

UFC molar: Werdum mætir Miocic, Ellenberger úr UFC og Shogun meiddur

0

UFC Logo Vector ResourceÞað hefur eitt og annað gerst á síðustu dögum sem við höfum ekki greint frá. Hér má sjá nokkra fréttamola úr UFC.

Werdum mætir Miocic

Það verða þeir Fabricio Werdum og Stipe Miocic sem verða í aðalbardaganum á UFC 198 í Brasilíu. Þungavigtarmeistarinn Werdum átti að mæta Cain Velasquez á UFC 196 en eftir að Velasquez dró sig úr bardaganum ákvað meistarinn að gera hið sama. Nú fær Miocic sitt langþráða tækifæri á titlinum en bardagarnir fara fram á 40.000 sæta leikvangi í Brasilíu.

Ellenberger ekki lengur í UFC

Jake Ellenberger hefur verið látinn fara úr UFC eftir fimm töp í síðustu sex bardögum. Ellenberger hefur átt afar erfitt uppdráttar á undanförnum árum en töpin fimm hafa öll komið gegn ansi sterkum andstæðingum á borð við Rory MacDonald, Stephen Thompson og Robbie Lawler. Telja má líklegt að Ellenberger fái samning í Bellator en hinn þrítugi Ellenberger barðist 16 bardaga á rúmum sex árum í UFC.

Shogun Rua meiddur

Mauricio ‘Shogun’ Rua átti að mæta Rashad Evans á UFC on Fox 19 bardagakvöldinu í apríl. Shogun getur ekki keppt í apríl vegna meiðsla en Glover Teixeira kemur í hans stað. Bardagi Shogun og Evans hefur lengi verið í smíðum en upphaflega áttu þeir að mætast árið 2011 er Shogun var meistarinn. Þá meiddist Evans og í hans stað kom Jon Jones.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version