Header_Ad
Home Box Undirbúa málshöfðun gegn ríkinu vegna banns við atvinnuhnefaleikum

Undirbúa málshöfðun gegn ríkinu vegna banns við atvinnuhnefaleikum

0

– Innsend grein-

Undirbúningur er hafinn að málshöfðun gegn íslenska ríkinu þar sem látið verður reyna á hvort bann við atvinnuhnefaleikum standist stjórnarskrá Íslands.

Gunnar Óli Guðjónsson, formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar, hefur farið fyrir baráttunni fyrir hönd atvinnuhnefaleikafólks á Íslandi. Gísli Kr. Björnsson lögmaður vinnur nú að undirbúningi málsins.

“Nú er mælirinn fullur. Árið er 2026 og enn eru í gildi lög sem koma í veg fyrir að íslenskir hnefaleikamenn geti stundað atvinnu sína hér á landi“ segir Gunnar Óli.

Málið snýst ekki aðeins um hnefaleika heldur grundvallarspurningu um atvinnufrelsi og stjórnarskrárvarin réttindi íslenskra borgara.

Í 75. gr. stjórnarskrárinnar segir:

„Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“

Hefur barist fyrir lagabreytingu árum saman

Málshöfðunin er næsta skref í baráttu sem staðið hefur yfir um árabil.

Gunnar Óli stóð meðal annars að baki þeirri vinnu sem leiddi til þess að Ágúst Bjarni Garðarsson alþingismaður lagði fram frumvarp á Alþingi um breytingar á lögum varðandi atvinnuhnefaleika. Þrátt fyrir tilraunir til að fá löggjöfinni breytt með pólitískum leiðum hefur bannið staðið óbreytt. Nú verður farin önnur leið.

„Við höfum reynt að fá þessu breytt í gegnum stjórnmálin. Nú er kominn tími til að láta dómstóla svara grundvallarspurningunni: Getur íslenska ríkið bannað einstaklingi að stunda atvinnu sína þegar íþróttin sjálf er lögleg hér á landi?“

Mega keppa – þar til þeir verða atvinnumenn

Gunnar bendir á það sem hann telur vera grundvallarmótsögn í núverandi löggjöf. Hnefaleikar eru lögleg íþrótt á Íslandi. Íslenskir hnefaleikamenn mega æfa og keppa hér á landi samkvæmt þeim reglum sem gilda um áhugamannahnefaleika. En vilji sami einstaklingur gera hnefaleika að atvinnu sinni og keppa sem atvinnumaður þarf hann að fara úr landi.

„Íslenskir atvinnuhnefaleikamenn geta stundað atvinnu sína erlendis en ekki í eigin heimalandi. Við teljum tímabært að fá úr því skorið hvort hægt sé að réttlæta slíkt inngrip í atvinnufrelsi árið 2026.“

Bannið látið reyna á fyrir dómstólum. Við undirbúning málshöfðunarinnar verður meðal annars horft til 75. gr. stjórnarskrárinnar og þess hvort þeir almannahagsmunir sem ríkið kann að vísa til réttlæti algjört bann við atvinnuhnefaleikum. Gunnar segir markmiðið ekki aðeins snúast um einn bardaga eða einn íþróttamann.

„Þetta er fyrir íslenskt atvinnuhnefaleikafólk og þá sem koma á eftir okkur. Við viljum einfaldlega fá skýrt svar um hvort íslenska ríkið hafi stjórnarskrárheimild til að banna fólki að stunda þessa atvinnu hér heima.“

Íslensku atvinnuhnefaleikamennirnir Kolbeinn Kristinsson, Emin Kadri og Valgerður Guðsteinsdóttir eru meðal þeirra sem málið snertir með beinum hætti og gætu þau loksins fengið að berjast á Íslandi með breyttu lagaumhverfi.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version