Header_Ad
Home Erlent Usman Nurmagomedov heldur Bellator titlinum eftir umdeilda dómaraákvörðun

Usman Nurmagomedov heldur Bellator titlinum eftir umdeilda dómaraákvörðun

0

Usman Nurmagomedov varði belti sitt gegn Paul Hughes í PFL bardagasamtökunum með klofinni dómaraákvörðun. Bardaginn var nokkuð jafn en ekki eru allir áhugamenn um bardagaíþróttir sáttir við niðurstöðu bardagans en það var dregið stig af Usman í þriðju lotu.

Conor nokkur McGregor er einn af þeim sem hafa gagnrýnt niðurstöðuna en hann setti færslu á samfélagsmiðilinn X þar sem hann segir að bardaginn hafi verið mjög góður en segir einnig að Hughes hafi haft yfirburði í bardaganum. Conor var þá einnig með skot á Nurmagomedov-fjölskylduna en hann endar færsluna á því að segja að Nurmagomedo-ar séu ekki bardagamenn, þeir hlaupi um búrið og skjóti í fellur án þess að berjast.

Á samfélagsmiðlum eru skiptar skoðanir; einhverjir telja Usman hafa unnið en aðrir eru á Hughes-vagninum með Conor. Hvað sem því líður hélt Usman beltinu en Hughes kom sér heldur betur á kortið með frábærri frammistöðu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version