Viktor Zoega keppti á sunnudaginn á Evrópumeistaramóti U23 í hnefaleikum sem fram fór í Budapest, Ungverjalandi en þetta er fyrsta stórmót sem Viktor keppir á fyrir Íslands hönd. Viktor mætti afar sterkum andstæðingi frá Úkraínu í kaflaskiptum og jöfnum bardaga en sigurinn fór því miður ekki í hans horn.
Viktor sem æfir og berst fyrir hnefaleikafélagið Bogatýr hélt út ásamt þjálfara sínum Nikita Stepanovs og höfðu þeir mikla trú og sjálfstraust komandi inn í mótið. Þeir áttu vel efni á því og sýndi Viktor að hann á vel heima á þessu háa stigi í Ólympískum hnefaleikum.
Viktor mætti Úkraínumanni að nafni Yevhenii Ivaniuk sem hafði töluvert lengri faðm en Viktor þannig Viktor þurfti að vinna mikið fyrir því að koma sér í færi. Viktor byrjaði bardagann af krafti og sigraði fyrstu lotu nokkuð þægilega þó einn af dómurunum fimm hafi af vísu gefið Úkraínumanninum lotuna.
Bardaginn snýst svo alveg við í annarri lotu og sigraði Úkraínumaðurinn hana greinilega. Viktor sagði sjálfur í samtali við MMA Fréttir að honum hefði fundist slokkna á sér í annarri lotu en fundist hann hafa náð að snúa stöðunni við í lokin. Þriðja lota var jöfn og hefði alveg mögulega getið dottið Viktors megin en dómararnir gefa hana að vísu allir til Úkraínumannsins rétt eins og aðra.

Besta högg bardagans kom frá Viktori þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir en þá lenti Viktor góðu vinstri handar höggi sem hefði líklega leitt til talningu ef meiri tími hefði verið á klukkunni því Viktori tókst greinilega að vanka hann léttilega og sást það á fótum Úkraínumannsins. Með aðeins meiri tíma á klukkunni hefði Viktor líklega þjarmað að andstæðingnum og tryggt sér lotuna. Tæpara verður það varla en Viktor sýndi það að hann á vel heima á þessu stóra sviði og er þetta eflaust ekki síðasta stórmót sem hann keppir á fyrir Íslands hönd.
Bardagann má finna hér að neðan og byrjar hann á sirka 1.33.00
Hér má finna “Leiðin að búrinu” þátt um Viktor og undirbúninginn hans fyrir mótið. Míkrafónar klikkuðu í upptökum á viðtölunum og heyrist því ekki eins vel í Viktori og Nikita og hefði óskast og biðjumst við velvirðingar á því.
Fimmta Lotan fór m.a. yfir bardaga Viktors í nýjasta Hnefaleika Special þættinum sem kom út í dag þar sem Emin Kadri og Garpur Fletcher mættu sem gestasérfræðingar. Hljóðskilaboð frá Nikita þjálfara Viktors eru spiluð á 27. mínútu þáttarins.