Header_Ad
Home Erlent Allen með öruggan sigur á Costa

Allen með öruggan sigur á Costa

0

Arnold Allen kom sér aftur á sigurbraut þegar hann sigraði Melquizael Costa á öruggan hátt eftir fimm lotna aðalbardaga í Apexinu um helgina. Nákvæmnin skilaði Allen sigrinum en hann lenti 70% af sínum höggum á meðan Costa, sem kastaði þó út fleiri höggum og spörkum, lenti aðeins 42% af sínum.

Allen byrjaði bardagann af miklum krafti og sló Costa niður með þungri vinstri hendi snemma í fyrstu lotu. Costa náði sér þó strax og í kjölfarið fylgdi skemmtileg glímubarátta þar sem Brasilíumaðurinn sýndi sterka takta, en Allen endaði þó lotuna í betri stöðu og tók hana á öllum stigablöðum.

Allen var skrefinu á undan nær allan bardagann. Bretinn setti stanslausa pressu á Costa, gaf honum lítið svigrúm og hélt honum stöðugt á hælunum. Stungan og beina eða yfirhandar vinstri höndin skiluðu Allen ítrekað hreinum höggum og Costa átti erfitt með að finna svör við nákvæmni Englendingsins. Önnur lotan var þó líklega besta lota Costa, einn dómari gaf honum þá lotu en það var eina lotan sem hann vann á einhverju stigaspjaldi. Brasilíumaðurinn náði inn góðum spörkum og hélt áfram að skapa hættulegar stöður í glímunni en Allen var áfram beittari með stunguna og lenti einnig með þungum vinstri handar höggum.

Allen hélt áfram að stjórna bardaganum þegar leið á hann. Í þriðju lotu tók hann Costa aftur úr jafnvægi með þungri beinni vinstri hendi eftir um tvær mínútur og hélt áfram að pressa án þess að gefa Costa tíma til að anda. Costa svaraði þó fyrir sig og bardaginn bauð upp á fjörug höggaskipti á köflum.

Í fjórðu lotunni náði Allen góðri fellu eftir að hafa verið yfir í höggatölfræði lotunnar. Costa reyndi meðal annars að hóta fótalási til að vinna sig aftur upp á fætur en Allen hélt góðri stjórn í glímunni og þegar Costa komst á lappir þá var það vegna þess að Allen hálfpartinn leyfði honum það. Undir lok fjórðu lotu var Costa orðinn illa blóðugur í kringum nef og munn.

Costa byrjaði fimmtu lotuna af miklum krafti vitandi að hann þyrfti líklega að klára bardagann. Með pressu neyddi hann Allen að bakka til að byrja með og hélt áfram að kasta miklu magni af höggum en Allen hélt ró sinni og svaraði með nákvæmum höggum og góðum fellum. Allen var afar skilvirkur í glímunni og Costa tókst aldrei að verjast nokkurri fellutilraun hans, allar sex heppnuðst. Bardaginn endaði með Allen ofan á þar sem hann lenti þungum höggum úr efri stöðu og kláraði fimmtu og síðustu lotuna af miklum krafti.

Spurður útí hvern hann vilji mæta næst sagðist hann vera að reyna að búa til barn með konunni sinni. Hann sagði að hann verði að minnsta kosti mjög aktífur því konan lifir dýrum lífstíl.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version