Dana White tilkynnti um helgina að Conor McGregor muni snúa aftur í búrið gegn Max Holloway í aðalbardaga UFC 329 sem fer fram 11. júlí í Las Vegas á International Fight Week. Þetta verður fyrsti bardagi McGregor síðan hann fótbrotnaði gegn Dustin Poirier sumarið 2021.
Bardaginn verður háður í veltivigt og er um að ræða endurleik frá árinu 2013 þegar McGregor sigraði Holloway eftir dómaraákvörðun í Boston. Holloway var þá aðeins 21 árs gamall og enn tiltölulega óreyndur í UFC, en hefur síðan þá þróast í einn besta fjaðurvigtarmann allra tíma.
Dana White tilkynnti bardagann á meðan Francis Ngannou var að ganga út á fyrsta MMA-kvöldi Jake Paul og MVP sem streymt var á Netflix, sem vakti gríðarleg viðbrögð á samfélagsmiðlum. Jake Paul sakaði White strax um að reyna að stela athyglinni af viðburðinum og kallaði hann meðal annars „óöruggan“.
Viðbrögðin við bardaganum sjálfum hafa hins vegar verið rosaleg. Fjölmargir miðlar kalla þetta stærsta UFC-bardaga ársins og einn stærsta comeback-bardaga í sögu sportins. McGregor er enn stærsta stjarna MMA-heimsins þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn bardaga síðan 2016.
Það sem gerir bardagann sérstaklega áhugaverðan er hvernig ferlar þeirra hafa þróast síðan þeir mættust fyrst. McGregor varð fyrsti tvöfaldur UFC-meistari sögunnar og stærsta pay-per-view stjarna sportins, á meðan Holloway byggði sig hægt og rólega upp sem einn tæknilegasti og endingarbesti striker UFC.
McGregor er þó ekki að fá auðvelt verkefni í endurkomunni. Samkvæmt fyrstu veðlínunum er Holloway töluverður sigurstranglegri og sumir miðlar hafa bent á að McGregor verði líklega stærsti underdog sem hann hefur verið í UFC á ferlinum.
McGregor brást sjálfur fljótt við tilkynningunni á samfélagsmiðlum og sagðist ætla að „son-a“ Holloway aftur, á meðan Holloway svaraði einfaldlega að nú væri komið hans tækifæri til að snúa sögunni við.
UFC 329 verður gríðarlega sterkt kort fyrir utan aðalbardagann. Paddy Pimblett mætir Benoit Saint Denis, Cory Sandhagen berst við Mario Bautista og ólympíumeistarinn Gable Steveson mun loksins þreyta UFC-frumraun sína.
