Header_Ad
Home Erlent Rousey afgreiddi Carano á 17 sekúndum á sögulegu kvöldi MVP MMA

Rousey afgreiddi Carano á 17 sekúndum á sögulegu kvöldi MVP MMA

0

Ronda Rousey þurfti aðeins 17 sekúndur til að sigra Gina Carano í aðalbardaga fyrsta MMA-kvölds Most Valuable Promotions sem fór fram í Intuit Dome í Los Angeles og var sýnt beint á Netflix.

Rousey sóaði engum tíma í endurkomubardaganum sínum og neyddi Carano til að tappa út áður en flestir áhorfendur voru sestir niður. Hún skaut strax í fellu, beint í mount og réðst á hendina á Carano. Þetta var klassíska uppskriftin hennar en hún kláraði fyrstu átta MMA bardagana sína með armbar en það var ekki fyrr en í þriðju UFC titlvörn sinni sem hún kláraði MMA bardaga á annan hátt. Af 13 atvinnumanna MMA bardögum sínum hefur hún núna unnið 10 af þeim með armbar.

Bardaginn var markaðssettur sem risastór nostalgíuviðburður fyrir kvenna-MMA. Carano hafði ekki barist síðan hún tapaði fyrir Cris Cyborg árið 2009 og Rousey hafði ekki keppt síðan hún tapaði fyrir Amanda Nunes undir lok árs 2016. Þrátt fyrir það tókst MVP og Netflix að skapa gríðarlega athygli í kringum viðburðinn.

Jake Paul og stjórnendur MVP voru mjög stórorðir fyrir bardagann og töluðu um að viðburðurinn gæti orðið einn sá mest áhorfði í sögu MMA. Jake Paul sagði í viðtali fyrir bardagann að hann yrði „ánægður með 20 milljón áhorfendur“, en opinberar áhorfstölur hafa þó ekki verið birtar enn sem komið er.

Fjölmargir stórir MMA-miðlar gagnrýndu þó viðureignina eftir á og töldu hana mjög ójafna. Margir bentu á að Carano hefði verið of lengi frá sportinu og að Rousey hefði litið út fyrir að vera á allt öðru getustigi frá fyrstu sekúndu.

Rousey staðfesti strax eftir bardagann að þetta hefði verið hennar síðasti MMA-bardagi og sagði að hún vildi nú einbeita sér að fjölskyldulífinu.

Samkvæmt bandarískum miðlum fékk Rousey rúmlega 2 milljónir dollara fyrir bardagann á meðan Carano fékk rúmlega eina milljón dollara fyrir endurkomuna.

Þrátt fyrir að aðalbardaginn hafi aðeins staðið í 17 sekúndur virðist fyrsta MMA-kvöld MVP hafa tekist vel. Viðburðurinn vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og þetta var jafnframt fyrsta stóra MMA-kvöldið sem Netflix sýndi í beinni útsendingu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version