Home Forsíða Axel Kristinsson íþróttamaður Seltjarnarness 2015

Axel Kristinsson íþróttamaður Seltjarnarness 2015

0
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Glímumaðurinn Axel Kristinsson úr Mjölni er íþróttamaður Seltjarnarness árið 2015. Óhætt er að segja að Axel hafi átt afar gott ár.

Axel átti afar gott ár í fyrra. Hann byrjaði á því að hafna í þriðja sæti í sínum flokki á Evrópumeistaramótinu í brasilísku jiu-jitsu sem fram fór í Lissabon. Mótið var á sínum tíma stærsta BJJ-mót sögunnar en Axel keppti í flokki brúnbeltinga.

Axel sigraði svo sinn flokk á Mjölnir Open 10 en mótið er nokkurs konar óopinbert Íslandsmeistaramót í uppgjafarglímu án galla (gi). Axel varð einnig Íslandsmeistari í brasilísku jiu-jitsu í galla í nóvember.

Axel vegnaði einnig vel í júdóinu og varð Norðurlandameistari í greininni. Þá sigraði hann Íslandsmeistaramótið í júdó sjötta árið í röð.

Verðlaunin voru veitt í gær en Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingarkona, var íþróttakona Seltjarnarness.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version