Header_Ad
Home Box Emin með rothögg í annarri lotu

Emin með rothögg í annarri lotu

0

Emin Kadri Eminsson jók við bardagametið sitt og er núna í 6 – 0 sem atvinnumaður eftir frábæra frammistöðu gegn Dinars Skripkins á Spáni í fyrrakvöld. Emin hóf atvinnumannaferilinn vel en segja má að gott geti alltaf orðið betra. Emin hefur verið að sækja virkilega sannfærandi úrslit í síðustu bardögum og er þetta annar bardaginn í röð þar sem Emin hefur ekki þurft að ráðfæra sig við dómara til að vita niðurstöðu viðureignarinnar.

Dinars Skripkins var að gera heiðarlega tilraun til að blása nýju lífi í hnefaleikaferilinn sinn og var þetta fimmti bardaginn hans eftir langt hlé. Dinars mætti í hringinn gegn Emin í von um að sækja úrslit gegn ósigraða Íslendingnum en Emin var aldrei á því máli og kramdi allar vonir og drauma Dinars um frama í hnefaleikum.

Í fyrstu lotu þurfti dómarinn að vera ansi duglegur við að slíta strákana í sundur þar sem þeir stigu gjarnar inn á móti hvor öðrum og enduðu í faðmlögum. Emin passaði sig á þessu betur í annarri lotu og kaus að halda fjarlægð við Dinars og finna opnanir í vörninni hans. Emin sló Dinars niður í annarri lotu og tók Lettinn sér smá tíma í að standa aftur upp áður en bardaginn hélt svo áfram. Sú hetjudáð lengdi bardagann ekki mikið en stuttu seinna lenti Emin í þungri hægri hendi sem setti Dinars aftur í gólfið og vildi hann ekki standa aftur upp eftir það.

Þetta markaði fjórða sigur Emins á árinu en planið var alltaf að vera virkur og berjast helst fimm bardaga á þessu ári. Það eru því líkur á að við sjáum unga efnið aftur í hringnum fyrir árslok.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version