Íslendingurinn efnilegi, Ronald Bjarki Mánason, er úr leik á HM í hnefaleikum eftir tap gegn Brayden Dyer frá Englandi. Ronald virtist stjórna bardaganum og vera betri maðurinn á deginum en þegar til dómaranna var leitað voru þeir ekki á sama máli og var sigurinn dæmdur til Englendingsins.
Ronald er annar tveggja keppenda frá Íslandi á HM sem í þetta skipti er haldið í Budva, Svartfjallalandi. Ronald keppti gegn Brayden Dyer í -50 kg flokki og barðist virkilega vel. Einróma ákvörðun í enskt horn kom flestum íslenskum áhorfendum líklega að óvart en Ronald virtist vera lenda fleiri höggum og víkja vel undan. Flestir virðast sammála um að Ronald hafi unnið fyrstu lotu. Englendingurinn vann sig vel inn í bardagann í annarri lotu en í þeirri þriðju stjórnaði Rónald dansinum og virtist vera með Englendinginn alveg í vasanum.
Svekkjandi úrslit en Ronald Bjarki má vera stoltur af sinni frammistöðu á sterkasta ungmennamóti í heiminum þar sem hann hefði léttilega geta komist áfram í næstu umferð. Brayden Dyer heldur áfram í 16 manna úrslit og mætir Rússanum Vladimir Orlov á mánudaginn. Mihail Fedorets frá Bogatýr berst fyrstu umferðina sína á morgun gegn Yanis Heger frá Þýskalandi. Búist er við að leikar hefjist kl. 14:00.
