Home Box Benn sigrar Prograis eftir blóðugan bardaga í Tottenham

Benn sigrar Prograis eftir blóðugan bardaga í Tottenham

0

Conor Benn sigraði Regis Prograis með samhljóða dómaraúrskurði, 98-92 á öllum stigablöðum, eftir tíu lotna hörkubardaga á Netflix-viðburði í Tottenham Hotspur Stadium í London. Bardaginn var co-main bardagi kvöldsins og einn af hápunktum þess sem stóð fyllilega undir væntingum með mikilli ákefð og dramatík.

Benn byrjaði af krafti og vann fyrstu þrjár loturnar með hraða, pressu og nákvæmni. Prograis náði hins vegar að snúa vörn í sókn í fjórðu og fimmtu lotu þar sem hann lagaði sig að tempóinu og gerði bardagann jafnari. Fimmta lotan var sérstaklega skemmtileg þar sem þeir skiptust á þungum höggum og létu lítið á sjá þrátt fyrir að vera að hitta fast.

Bardaginn breyttist svo aftur Benn í vil þegar hann fór að vinna betur í návíginu. Hann lagði mikla áherslu á líkamsvinnu sem fór greinilega að draga úr Prograis, sérstaklega í sjöttu og sjöundu lotu. Þrátt fyrir að verða fyrir skalla og opnast yfir báðum augabrúnum hélt Benn áfram að pressa og sýndi bæði seiglu og áræðni.

Prograis, sem var að stíga upp úr 140 pundum og keppti undir takmörkunum, virtist þreytast þegar leið á bardagann. Benn nýtti það vel, hélt stöðugri pressu og tók yfir síðari hluta bardagans. Óopinbert stigamat í miðjum bardaga endurspeglaði þetta vel, þar sem Benn var yfir eftir fyrstu loturnar, Prograis tók miðjukaflann, en Benn tók aftur yfir frá sjöttu lotu.

Í lok bardagans var ljóst hversu mikið báðir höfðu lagt í hann. Prograis var marinn og greinilega búinn að taka við miklu magni af höggum, á meðan Benn stóð blóðugur með stóran skurð yfir hægra auga og annan yfir vinstri, eftir endurtekna höfuðárekstra í bardaganum.

Fyrir síðustu lotuna þurfti Prograis rothögg, en það kom aldrei. Benn stjórnaði lokakaflanum og tryggði sér sannfærandi sigur á stigum, 98-92 hjá öllum dómurum. Sigurinn er sérstaklega athyglisverður þar sem þetta var fyrsti stóri bardagi Benn eftir að hann yfirgaf Eddie Hearn og gekk til liðs við Zuffa Boxing, hnefaleikadeild TKO Group Holdings sem eru einnig á bak við UFC. Með þessum sigri sýnir hann að hann er tilbúinn í stærri áskoranir og stærri nöfn á næsta stigi.

Þetta var einfaldlega mjög góður bardagi — blóðugur, hraður og skemmtilegur frá fyrstu lotu til þeirrar síðustu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version