Home Box Fury valtar yfir Makhmudov og skorar á Joshua í hringnum

Fury valtar yfir Makhmudov og skorar á Joshua í hringnum

0

Tyson Fury sigraði Arslanbek Makhmudov með algjörum yfirburðum eftir 12 lotna bardaga á Netflix-viðburði í Tottenham Hotspur Stadium í London. Dómarar skoruðu bardagann 120-108, 120-108 og 119-109, sem endurspeglar einhliða frammistöðu þar sem Fury tók yfir eftir fyrstu lotu og lét aldrei af stjórninni.

Makhmudov byrjaði af krafti og virtist taka fyrstu lotuna með pressu og stjórn í hringnum, en það var í raun það eina sem hann átti í bardaganum, og aðeins nóg til að vinna þá einu lotu á einu stigablaði. Fury svaraði strax í annarri lotu, fann jabbið sitt og kláraði lotuna sterkt. Frá þriðju lotu var þetta svo algjörlega hans bardagi.

Fury fann taktinn, skipti á milli orthodox og southpaw og stjórnaði bardaganum með jabbi, góðum hreyfingum og nákvæmum höggum. Makhmudov hélt áfram að sækja fram með víð og þung högg, en þau urðu sífellt ómarkvissari og tæmdu orkuna hans. Þegar leið á bardagann fór hann sífellt oftar í clinch, en þar svaraði Fury vel með líkamsvinnu og höggum þegar þeir skildu.

Í áttundu og níundu lotu var yfirburðurinn orðinn augljós. Fury var að lenda margfalt fleiri höggum, vann úr báðum stöðum og fann ítrekað upphöggin þegar Makhmudov kom inn í návígi. Í níundu lotu sló hann munnstykkið úr honum með hreinu upphöggi. Seinni hluti bardagans var einfaldlega eign Tyson Fury. Makhmudov virkaði þreyttur og að reyna að halda á meðan Fury var í flæði og með fulla stjórn.

Strax eftir bardagann færðist sviðið yfir í dramatík í hringnum. Fury fékk hljóðnemann og skoraði opinberlega á Anthony Joshua. „Let’s give the fight fans what they want,“ sagði Fury og kallaði eftir „Battle of Britain“ bardaga sem hefur verið í umræðunni í mörg ár.
Joshua starði hann niður úr sætinu sínu og svaraði ekki strax, á meðan Fury hélt áfram að þrýsta á svar og kastaði til hans hörðum orðum. Andrúmsloftið varð rafmagnað og ljóst að þessi bardagi er nær en nokkru sinni fyrr.

Fury tileinkaði sigurinn einnig Ricky Hatton og söng til heiðurs honum í hringnum eftir bardagann, sem gaf augnablikinu persónulegan blæ eftir einhliða frammistöðu í búrinu. Með þessum sigri og eftirleiknum í hringnum virðist allt stefna í einn stærsta bardaga í sögu breskra hnefaleika — Tyson Fury gegn Anthony Joshua.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version