Cub Swanson átti stórkostlegt kvöld þegar hann rotaði Nate Landwehr í fyrstu lotu í opnunarbardaganum á aðalkorti UFC 327.
Swanson leit út fyrir að vera á hátindi ferilsins í sínum síðasta bardaga. Hann var nákvæmur frá fyrstu sekúndu, blandaði saman lágspörkum, stungum, beinum höggum og krókum og fann sig strax í fjarlægðinni.
Hann sló Landwehr niður snemma í lotunni og hélt áfram að setja pressu með hnitmiðuðum höggum. Endirinn kom svo með hægri hendi sem small hreint og felldi Landwehr í gólfið. Swanson lyfti höndunum til fagnaðar áður en dómarinn Herb Dean náði að stöðva bardagann. Hann bætti svo við einu höggi á gólfinu áður en bardaginn var stöðvaður. Landwehr reyndi að halda áfram og tók jafnvel að glíma við dómarann eftir stöðvun, sem sýndi hversu mikill hasar og adrenalín var í augnablikinu.
Eftir bardagann opnaði Swanson sig um tilfinningarnar sem fylgja því að stíga inn í búrið.
„Ég er hræddur í hvert einasta skipti sem ég geng þarna út, en ég reyni bara að vera hugrakkur,“ sagði hann.
Swanson skilur eftir sig 15 ára feril í UFC og hefur verið atvinnumaður síðan árið 2004. Hann endar ferilinn með yfir 30 sigra og hefur mætt mörgum af bestu bardagamönnum heims. Hann á meðal annars sigra yfir menn eins og Dustin Poirier og Charles Oliveira, sem undirstrikar gæðin í ferlinum hans.
Hann var þekktur fyrir að vera einn skemmtilegasti bardagamaður sinnar kynslóðar og átti fjölda bardaga sem lifa áfram í minni aðdáenda. Þar ber hæst bardaginn gegn Doo Ho Choi árið 2016 sem var valinn bardagi ársins og er talinn einn sá besti í sögu UFC.
Í gegnum ferilinn safnaði hann einnig fjölda bónusa fyrir frammistöður sínar og var þekktur fyrir að skila nánast alltaf skemmtun, sama hver niðurstaðan var.
Tölfræðilega stendur hann einnig upp úr í fjaðurvigtinni. Swanson er í þriðja sæti yfir flest högg í sögu deildarinnar en hann tók fram úr meistaranum Alexander Volkanovski í þessum síðasta bardaga ferilsins. Swanson er jafnframt í öðru sæti yfir flest knockdowns, sem sýnir hversu hættulegur hann hefur alltaf verið standandi.
Allt þetta undirstrikar hversu áhrifamikill og stöðugur hann var í gegnum árin, bardagamaður sem gaf áhorfendum alltaf mikla skemmtun.
Swanson kvaddi feril sinn á fullkominn hátt með rothöggi og skildi hanskana eftir í búrinu að bardaga loknum fyrir framan konu sína og börn sem sátu með Donald Trump forseta Bandaríkjanna.
