Paulo Costa sigraði Azamat Murzakanov með tæknilegu rothöggi í þriðju lotu í co-main bardaga kvöldsins á UFC 327. Costa, sem var að stíga upp í léttþungavigt, leit stærri og kraftmeiri út en nokkru sinni fyrr og sýndi strax að hann á fullt erindi í þennan þyngdarflokk.
Costa byrjaði bardagann af miklum krafti og stjórnaði fyrstu lotunni með hörðum spörkum í skrokkinn og nákvæmum höggum. Hann felldi Murzakanov niður með stungu og vann úr toppstöðu áður en Murzakanov náði að standa upp aftur. Fyrsta lotan var afgerandi hjá Costa.
Önnur lota var mun jafnari. Murzakanov kom sterkari inn, byrjaði að lenda þyngri höggum og setti Costa undir pressu. Costa svaraði með góðu höggi í skrokkinn sem sneri aftur stöðunni við. Murzakanov tókst að fella Costa, lenti í side-control og hélt Costa í headlock í smástund áður en Costa tókst að renna sér útúr því. Costa komst í góða stöðu og stjórnaði í clinchinu upp við búrið, en lotan var mjög jöfn. Dómarar dæmdu hana þó allir Murzakanov í vil.
Í þriðju lotu tók Costa aftur yfir. Hann opnaði af krafti með innanverðum lágspörkum, háspörkum og beinum höggum, uppi og niðri. Hann setti Murzakanov á hælana og hélt áfram að pressa. Að lokum small gríðarlegt háspark sem setti Murzakanov í vandræði. Hann sneri sér frá, féll niður og dómarinn greip strax inn í án þess að þörf væri á fleiri höggum í gólfinu.
Costa hoppaði yfir búrið eftir sigurinn og fagnaði með því að heilsa upp á Donald Trump við hlið búrsins. Þessi frammistaða var sterk yfirlýsing frá Costa í nýjum þyngdarflokki og ljóst að hann verður hættulegur í léttþungavigt ef hann heldur áfram á þessari braut.
