Carlos Ulberg rotaði Jiří Procházka í fyrstu lotu og varð nýr UFC meistari í léttþungavigt í aðalbardaga UFC 327 eftir ótrúlega atburðarás. Ulberg virtist meiða sig illa á hægra hné snemma í bardaganum, en kláraði samt einn hættulegasta mann flokksins með fullkomnum vinstri krók og grimmum ground and pound höggum í gólfinu.
Bardaginn byrjaði rólega með spörkum, en fljótlega fór eitthvað úrskeiðis hjá Ulberg þegar hann steig til baka og hægra hnéð virtist gefa sig. Hann haltraði strax og átti erfitt með að setja þunga í fótinn. Það hefur ekki verið staðfest nákvæmlega hvað gerðist, en allt benti til alvarlegra hnémeiðsla og mögulega liðbandameiðsla.
Jiří Procházka sá strax að andstæðingurinn var skaddaður og benti á jörðina, en virtist á sama tíma hikandi við að ráðast á hann af fullum krafti og sagðist sjálfur vilja sýna Ulberg miskunn. Ulberg, fann höggið sem lýsendur höfðu fyrirfram talað um að væri hans besta vopn. Check vinstri krókurinn lenti hreint og felldi Procházka. Ulberg fylgdi því eftir með grimmum höggum í gólfinu þar til dómarinn stöðvaði bardagann og krýndi hann sem nýjan meistara.
Þetta var einn ótrúlegasti titilsigur sem sést hefur í UFC. Ulberg vann bardagann nánast á einum fæti, gegn fyrrum meistara, og sýndi að eitt högg getur breytt öllu. Hann er núna nýi léttþungavigtar kóngurinn eftir að Alex Pereira lét titilinn lausan og færði sig upp í þungavigt. Með nýjan meistara opnast alls kyns mögulegar í titilbaráttunni og verður spennandi að fylgjast með gegn hverjum fyrsta titilvörnin verður en ljóst er að það verður talsverður tími í það vegna meiðslanna.
