Home Erlent Douglas kláraði Erosa í fyrstu lotu, sýndi gríðarlegan höggþunga í frumraun sinni

Douglas kláraði Erosa í fyrstu lotu, sýndi gríðarlegan höggþunga í frumraun sinni

0

Lerryan Douglas kláraði Julian Erosa í UFC fraumraun sinni á bardagakvöldi UFC Seattle í nótt þar sem Israel Adesanya og Joe Pyfer mættust í aðalbardaga kvöldsins.

Douglas lét strax til sín taka í fyrstu lotu þegar hann mætti Rosa og sýndi frá fyrstu sekúndu að hann var kominn til að klára bardagann. Snemma í lotunni fór að sjást áhrif frá lágspörkunum hans, þar sem Erosa byrjaði að stíga óstöðugur í fótinn. Douglas var hnitmiðaður og kraftmikill í höggunum sínum og lenti bæði hreinum vinstri og hægri höggum sem höfðu strax sýnileg áhrif. Lýsendur bentu á að hvert einasta högg virtist hafa áhrif, og það sást greinilega á viðbrögðum Erosa sem var ítrekað rokkaður.

Þrátt fyrir það hélt Erosa áfram að pressa og reyndi að breyta bardaganum í hreinan firefight, en Douglas hélt ró sinni og nýtti kraft sinn og nákvæmni til fulls. Stunga Douglas reyndist sérstaklega banvænt vopn, en hann rokkaði og felldi Erosa aftur og aftur með því einu saman. Erosa var á stöðugt veikburða fótum og náði aldrei að jafna sig almennilega.

Að lokum lokaði Douglas bardaganum með þungu hægrihandar höggi eftir að hafa brotið niður andstæðing sinn með stungunni og stöðugri pressu. Þetta var afdráttarlaus yfirlýsing í hans fyrsta bardaga, þar sem hann sýndi gríðarlegan höggþunga og skilvirkni. Eins og Brendan Fitzgerald lýsandi orðaði það eftir bardagann: „That’s how you enter the UFC.“

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version