Icebox var haldið í tíunda skipti föstudaginn 12. júní. Kvöldið skartaði átta bardögum í ýmsum flokkum og getustigum ásamt þremur virkilega efnilegum dönskum hnefaleikamönnum sem mættu þremur af efnilegustu keppendunum okkar. Fyrir utan hnefaleikaveisluna fengu áhorfendur sannkallaða veislu með víkingaklappi, lifandi tónlistaratriðum og hálfleiksýningu.
Dögg Var lét drauminn rætast á Icebox.
Fulltrúi HFR, Dögg Var, mætti Simona Mikstaite frá Bogatý. Þetta var eini kvennabardaginn á kvöldinu en stelpurnar opnuðu kvöldið með bardaga sem kom skemmtilega á óvart. Það var tónmenntakennarinn úr Keflvík, Dögg Var, sem sló tóninn fyrir kvöldið og kláraði bardagann með tæknilegu rothöggi í annarri lotu.
Faisal Ólafsson upplifði Déjà vu
Það kom svo að endurleik milli Faisal Ólafssonar (Æsir) og Govand Zeravan (GFR). Þeir mættust áður á hnefaleikamóti HNÍ og endaði sú viðureign með klofinni dómaraákvörðun til Faisal. Það var mikil spenna fyrir þessum endurleik en eftir svakalega skemmtilegan bardaga var niðurstaðan sú sama: klofin ákvörðun til Faisal.
Pal Lleshi nýr af nálinni og óstöðvandi
Pal Lleshi er nýjasta framlag Bogatýs í hnefaleikum og virðist þessi ætla að vera alveg óstöðvandi. Pal sigraði Seyam Omar á dómaraákvörðun eftir virkilega erfiðan bardaga þar sem Seyam var mjög léttur á fótum og lét Pal vinna fyrri öllum höggum.
Kóngurinn snéri heim
Alexander Puchkov kom til baka eftir að hafa tekið sér pásu frá hnefaleikum. Alexander vann fyrsta mótið sem Davíð Rúnar mótshaldari hélt. Var það kallað Icebox Open og haldið í Laugardalnum. Puchkov hafði engu gleymt en hann mætti Alvaró Herendero frá Æsi. Puchkov vann fyrstu tvær loturnar sannfærandi en Alvaró vann sig inn í bardagann í þriðju lotu þegar hann byrjaði að leika sér meira og létti á stemningunni.
Ísak Guðnason kom sá og sigraði með 2 daga fyrirvara.
Ísak Guðnason (HFK) verður hér með þekktur sem Íslenski Terminator. Eftir vendingar í bardagamálum bauðst Ísaki að taka bardaga á Icebox með tveggja daga fyrirvara. Hann taldi sig nægilega vel undirbúinn eftir gott mót í Hollandi og sigraði William Þór (HR) með sannfærandi frammistöðu. Ísak var mjög grimmur og ákveðinn allan tímann og átti William erfitt með að eiga við ákveðnina hans Ísak. Ísak snýr eflaust aftur á næstu Icebox eins og alvöru tortímandi!
Svekkjandi bardagi hjá Mihail Fedorets
Mihail Fedorets (Bogatýr) mætti Anthony Parkes, dönskum meistara, sem nýtti sér reynsluna og hæð til að sigra Mihail í fremur svekkjandi bardaga. Mihail barðist ágætlega og lét finna mikið fyrir sér í bardaganum. Hann átti það til að dýfa hausnum svolítið lágt og notaði Anthony Parkes hæðina sína til að leggjast ofan á Mihail. Í kjölfarið var Mihail oft skammaður af hringdómaranum sem virtist greinilega fara í taugarnar á Mihail sem neitaði að taka í höndina á Anthony eftir bardagann.
Besti bardagi í sögu Icebox og heimboð
Nóel Freyr (HR) og Qualid Osman (DK) börðust bardaga kvöldsins enda var hér á ferðinni líklega besti bardagi í sögu Icebox. Qualid sigraði með klofinni dómaraákvörðun og bauð svo Nóel heim til Danmerkur til að eiga þessa viðureign aftur. Qualid hætti ekki að sveifla sér og pressa á Nóel sem hreyfði sig undan Qualid með glæsilegum tilþrifum. Er leið á bardagann hætti Nóel að svara fyrir sig og festist í því að færa sig undan. Því miður komu höggin bara úr danska horninu á þeim tíma sem var líklega nóg til að tryggja sigurinn.
Sigurjón lokaði kvöldinu með rothöggi
Sigurjón Guðnason (Bogatýr) lokaði kvöldinu með hreint stórglæsilegu rothöggi á Danann Oskar Sønnichsen. Oskar byrjaði ágætlega vel en nýr og endurbættur Sigurjón fór frekar létt með Sønnichsen. Sigurjón var líklega að vinna lotuna á stigum þegar hann lenti svakalegri hægri hendi sem setti Oskar beint í gólfið! Rothöggið tryggði Sigurjóni Icebox-beltið!
