Fyrsta bardaganum var að ljúka á UFC Fight Night: Evloev vs. Murphy en kvöldið byrjaði á strávigtarviðureign Shanelle Dyer og Ravena Oliveira. Dyer gerði sér lítið fyrir og kláraði Oliveira með rothöggi í annarri lotu í UFC frumraun sinni.
Shanelle Dyer leit mjög vel út í sínum fyrsta UFC bardaga, alveg frá byrjun. Ravena Oliveira var að sveifla yfirhandar höggum mjög villt en Dyer var varnarlega öguð og kom sér ávallt frá eða blokkaði og svaraði með góðum lágspörkum og framspörkum upp miðjuna. Oliveira skaut í fellu seint í fyrstu lotu en Dyer sneri henni við, náði aðskilnaði og hélt áfram kasta út höggum. Sterk fyrsta lota fyrir Dyer
Oliveira óð í Dyer snemma í annarri lotu, lenti ágætishöggi og náði Dyer aðeins úr jafnvægi í skamma stund. Dyer náði þó að halda sér öruggri og hélt áfram uppteknum hætti frá fyrri lotunni.
Bardaginn endaði svo í annarri lotu þegar Dyer hitti beinni hægri og fylgdi eftir með frábæru hásparki í höfuð Oliveira. Hún fylgdi því svo eftir með fleiri góðum höggum. Hún dróg hana niður í gólfið og kláraði hana með höggum í gólfinu.
Dyer sagði í viðtalinu beint eftir bardagann að hún ætli taka þær allar í strávigtarþyngdarflokknum út, eina í einu, í átt sinni að titlinum. Vægast sagt spennandi bardagakona til að fylgjast með.
