HFH Open átti að fara fram um helgina eins og fréttað var um í gær en vegna ofsaveðurs var ómögulegt fyrir erlendu keppendurnar að ferðast til Íslands og hefur því verið ákveðið að fresta mótinu þangað til seinna. HFH Open verður þó haldið á árinu en ný dagsetning hefur ekki enn verið ákveðin.
Skipuleggjendur HFH Open deyja þó ekki ráðalausir. Búið er að skipuleggja eins dags mót þar sem við eigum von á tólf bardaga keppnidegi.
Arnór Már segir í skilaboðum til MMA Frétta
það vildi svo leiðinlega til að öllum flugum til Íslands var aflýst og við tókum þá ákvörðun, eftir að keppendafjöldanum fækkaði svo gífurlega vegna þessa, að færa mótið á nýja dagsetningu en halda klúbbamót í staðinn á laugardag. Það verða engu að síður um 12 bardagar á laugardaginn og það stefnir í gott mót. Við finnum nýja dagsetningu fyrir Open bráðlega og náum þá vonandi að trekkja að góða þátttöku erlendis frá en við græðum þá bara eitt aukamót á Seasoninu í heildina svo það er ekki alslæm lending.
Arnór Már – Mótshaldari HFH Open
