Home Box HFH Open haldið í annað skiptið

HFH Open haldið í annað skiptið

0

Þann 21. – 22. mars fer fram HFH Open Hnefaleikamót í Hafnarfirði. Fyrri dagurinn verður haldinn á Strandgötu í Hafnarfirði en seinni dagurinn mun fara fram í húsakynnum Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar. Þetta verður í annað skiptið sem mótið er haldið en mótið er einnar sinnar tegundar á Íslandi og líkist öðrum opnum mótum erlendis þar sem mikið af erlendu hnefaleikafólki kemur til landsins til að berjast.

Kominn tími fyrir svona mót

Í samtali við MMA Fréttir segir Arnór Már Grímsson, einn mótshaldaranna, að það hafi verið kominn tími til að mót í þessum stíl hérna heima. Íslendingar hafa verið að fara í keppnisferðir erlendis til þess að afla sér reynslu á mótum þar sem keppendur keppa fjölda bardaga yfir eina helgi gegn erlendu hnefaleikafólki. HFH Open er Tournament sem líkist Íslandsmeistaramótinu fyrir utan að keppendur koma víðsvegar frá heiminum og geta keppendur óskað eftir fleiri viðureignum fyrir reynslu.

Framtíðarplanið er að mótið verði haldið á hverju ári og stækki með árunum. Vonast er til þess að geta haft yfir hundrað bardaga og barist verði í þremur hringjum samtímis eins og á sambærilegum mótum í Danmörku og Noregi. Að halda mót af þessu tagi er virkilega gott fyrir hnefaleikasenuna heima þar sem dómarar, mótshaldarar og þjálfarar eiga auðveldara með að sækja sér reynslu. Til dæmis skapar þetta tækifæri fyrir íslenska dómarar til að bera saman bækur sínar við aðra dómara erlendis miðlað reynslu sinni.

Góð skráning en veðrið er að stríða okkur

Það voru hundrað keppendur sem skráðu sig til leiks á mótið, sem er töluverð aukning frá árinu áður. Flestir erlendir keppendur koma frá Írlandi og Noregi en Grænlendingar eru einnig skráðir til leiks. Upprunalega mátti gera ráð fyrir 25 bardögum á laugardeginum og 17 bardögum á sunnudeginum en einhverjir keppendur drógu sig úr keppni vegna veðurs og flugforfalla. Vigtunin fyrir mótið fer fram kl 19:00 á föstudaginn og mun þá koma endanleg niðurstaða í fjölda viðureigna.

Mótið hefst opinberlega á föstudaginn eftir vigtun en fyrstu viðureignirnar hefjast kl 11:00 á laugardeginum og klárast ekki fyrir en 18 – 19:00 um kvöldið. Almennileg hnefaleikaveisla þar á ferð! Gert er ráð fyrir að sunnudagurinn verði töluvert styttri og verður mótið auðvitað opið fyrir áhorfendum. Húsið opnar klukkustund fyrir fyrstu viðureign.

Spennandi bardagar eru fram undan.

Að sögn Arnórs ættum við að vera sérstaklega spennt fyrir 65 – 70 kg elite A-class og 80 kg elite A-Class flokkunum ásamt elite kvennaflokki og U19-flokkunum. Hvað varðar okkar fólk má til dæmis nefna Kormák Stein, Arnar Jaka, Benedikt Gylfa, Gabríel Maríno, Dögg Var, Hafþór Magnússon, Simona Mikstaite og Hildi Kristín sem öll fá bardaga við ferskan

andstæðing utan úr heimi.

Arnór undirstrikar við MMA Fréttir að markmiðið hérna sé ekki að selja miða og halda flotta sýningu, heldur að búa til vettvang fyrir hnefaleikafólkið okkar, þjálfara og dómara til að afla sér reynslu.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version