Header_Ad
Home Box Kolbeinn tryggði tuttugasta sigurinn eftir blóðugt stríð

Kolbeinn tryggði tuttugasta sigurinn eftir blóðugt stríð

0

Kolbeinn Kristinsson mætti Tékkanum Pavel Saur í Kaupmannahöfn á Big Boys Boksegalla í bardaga sem fer í sögubækurnar, ekki aðeins sem tuttugasti sigur Kolbeins í röð heldur einnig sem blóðugasta stríð sem sést hefur í íslenskum hnefaleikum. Bardaginn endaði með tæknilegu rothöggi þegar hornið hans Pavel Saur hafði séð nóg og kastaði inn handklæðinu í fimmtu lotu.

Kolbeinn fékk skurð fyrir ofan augað í fyrstu lotunni sem hafði mikil áhrif á framvindu bardagans en erfitt virtist að stöðva blæðinguna og voru báðir menn gjörsamlega útataðir í blóði eftir loturnar fimm. Það hefði margt getað gengið betur fyrir Kolbein en hann var einnig að eiga við tognun í kálfa sem gerði honum erfitt fyrir að vera eins hreyfanlegur og hann hefði viljað. Pavel Saur kom líka öllum á óvart og þurfti Kolbeinn virkilega að grafa djúpt og hafa mikið fyrir hlutunum til þess að bera sigur úr býtum.

Kolbeinn og Pavel skullu saman í fyrstu lotunni og Pavel keyrði virkilega á Kolbein og reyndi hvað hann gat til að taka hann út og var ekki hræddur við að stíga inn í návígi við Kolbein og láta vaða. Pavel lenti mörgum góðum höggum á Kolbein en Kolbeinn hélt jafnvægi og ró sinni og þegar líða fór á bardagann fór hann að finna góð skrokkshögg. Kolbeinn sló Pavel niður með vinstri krók í lifrina í fjórðu lotu og sagði hann í viðtali við MMA Fréttir beint eftir bardaga að þá hefði hann vitað að hann væri með hann. Kolbeinn hitti nokkrum góðum skrokkshöggum í viðbót sem Pavel fann klárlega mikið fyrir, fór niður og fékk talningu.

Í fimmtu lotunni opnaðist svo tækifæri fyrir fyrir vinstri handar höfuðhögg eftir að Kolbeinn hafði hitt enn einu skrokkshögginu og fór Pavel niður við það. Pavel virtist þá kinka kolli til hornsins síns um að nú væri kominn tími til að kasta inn handklæðinu en upp að þeim tímapunkti hafði hann ekki gefið nein merki um að vilja gefast upp og hafði sýnt mikið hjarta.

Kynnirinn á kvöldinu sagði að þetta hefði verið besti bardaga allra tíma í Danmörku og er klárlega bardagi sem mun lifa vel í minni viðstaddra og þeirra sem horfðu heima á Íslandi í sjónvarpinu eða í Mini Garðinum, en aðdáendur Kolla og Emins gjörsamlega troðfylltu Mini Garðinn til að styðja sína menn.

Það verður áhugavert að sjá hvað tekur við næst hjá Kolbeini en hann er kominn með myndarlegt 20-0 met í atvinnumanna hnefaleikum og gætu stórir bardagar verið rétt handan við hornið.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version